- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Þriðja Bindi /
50

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

50

SKÚLI LANDFÓGETI AIAGNÚSSON.

vagii með aktýjum og einii plóg. Eu að þetta sé hið allra
minnsta af því, er fylgt hefir stofnununum, má ráða af því, að
áhöldin og allt það, er stofnununum heyrði til, að húsunum
undanskildum, var metið á 68,834 dali. Duggurnar eru
náttúr-lega taldar þar í með öllum reiða og veiðarfærum. Öll voru
hús stofnananna og áhöld í góðu standi.

Af vinnufólki við stofnanirnar telur skýrsla Pahls einn
for-stöðumann við dúkvefnaðinn, einn forstöðumann við töjvefnaðinn.
einn ráðsmann, 4 dúkvefnaðarsveina, 4 töjvefnaðarsveina, 15
spunakonur, 5 táningskonur, einn klæðskera, 4 kembara, 2
spól-ara, 2 baibínara, einn þófara, einn færasnúningsmann, einn danskan
keraldasmið og 2 íslendinga, er lært höfðu þá iðn við
stofnanirn-ar, einn íslenzkan húsasmið, einn sútara og 10 námssveina.
Stofn-anirnar höfðu í seli uppi við Elliðakot og sat þar ráðsmaður og
ráðskona og 2 drengir, er hafa skyldu eptirlit með ánum að
sumrinu til.1

Af regium þeim, sem Phal voru gefnar, má sjá að stjórnin
hálft i hverju hefur óttast, að eigi mundi máske öllu því fé, er
til stofnananna var lagt, hafa verið varið á sem beztan hátt og
yfir höfuð eigi allt gengið sem skyldi. Var stjórnendum
stofn-auanna um leið boðið að senda aðalreikning yfir tekjur og
út-gjöld þeirra til Hafnar sama haust. En reikningarnir voru
yfirgripsmiklir og þurfti eigi lítinn tíma til þess að gera þá vel
og skipulega úr garði með tilheyrandi fylgiskjölum og kvittunum,
og gátu því stjórnendur eigi sent þá utan um haustið. J>ótti nú
óvinum Skúla í Höfn bera vel í veiði og spöruðu eigi að bera
honum á brýn, að hann mundi eiga bágt með að gera
reiknings-skil og mundi líklega nokkuð af fé því, er konungur gaf til
stofn-ananna, hafa runnið í hans eigin vasa. |>eir breiddu það og út,
að hann hefði illa stjóruað stofnunum og væri engum öðrum en
honum sjálfum um að kenna, að stofnanirnar hefðu eigi tekið
betri framförum. Hversu mikið far óvinir Skúla hafa gert sér
um að rógbera hann á allar lundir og sverta mannorð hans, má
bezt sjá af bréfi nokkrn, er Hastfer barúnn2 skrifaði Skúla um

1 Sjá ’Sager aiigáende de nye Indretninger pá Island’ á Ríkis-

skjalasafninu.

3 Friederik Wilhelm Hastfer (1719—1768) hafði nokkru fyrir þennan
tíma komið á fót fjárbetrunarstofnunum á Elliðavatni. Skúli var
honum mjög innan handar með að koma því fyrirtæki á laggirnar

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:32 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/3/0060.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free