- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Þriðja Bindi /
93

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

54 SK.ÚLI LANDFÓGETI MAGNÚSSON.

93

til ihugunar alla þá klögupósta, er hinir íslenzku hluthafendur
hér að auk kunna að koma fram með í málinu.1

Jeg hef tekið hér nefndarskipunina upp i heild sinni
mest-megnis af þeirri ástæðu, að hún sýnir svo vel, hversu málsókn
Skúla venjulegast var varið. |>að er eigi nóg með, að ailar
sakir, smáar og stórar, séu tíndar til og teknar fram, heldur
reisir hann af nýju mál, sem þegar var útkljáð fyrir hæztarétti
(sbr. 7. póst), og setur fram kröfur, sem eigi virðist nein
sann-girni í (t. d. að koma stofnununum í sama horf og þær voru í
við áramót 1763—64, sbr. 8. pdst, og um launaútborgunina,
sbr. 9. póst). J>að var því engin furða þótt félagsstjórninni eigi
yrði um sel, er hún heyrði allar þessar ákærur. Hún þekkti
Skúla svo vel, að hún vissi, að hún nú mátti búast við öllu
hinu versta, að hún mátti vænta þess, að hann léti ekkert
sparað, er kapp og fylgi og margra ára rótgróin heipt mætti finna
til, til að ná hefndum yfir féiaginu. Auk þess vissi féiagsstjórnin
upp á sig skömmina í ýmsum atriðum og óttaðist hversu fara
mundi. Hún tók loks það ráð að skrifa konungi 25. maj s. á.
og biðja umbóta á nefndarskipuninni, því að öðrum kosti segir
hún að félagið eigi megi koma fram vörn í málinu. Hún kvartar
sáran yfir því, að málið skuli rannsakað og dæmt á Islandi,
þykist eigi geta fengið þar neinn færau mann tii að flytja máiið
fyrir sina hönd, kveður tímann alit of nauman o. m. fl.2

1 Sjá Lovsaml. f. Isl. 3. B. bls. 764.

3 Af því að skjalið að ýmsu leyfi er merkilegt og einkennilegt, set
jeg það liér eins og það er í lieild sinni (í ísl. þýðingu).

>Landfógetinn hefur birt fyrir oss nefndarskipun nokkra, er
Yðar Hátign hefur sent til Magnúsar varalögmanns Ólafssonar og
Sigurðar landþingsskrifara Sigurðssonar, viðvíkjandi ýmsum póstum,
er landfógetinn hefur komið fram með gagnvart verzlunarfélaginu.
Ekkert er maklegra en að landfógetanum, svo framarlega sem
hann þykist hafa ástæðu til að bera sig upp undan félaginu, sé
gefið tækifæri til að ná rétti sínum, en hinnsvegar viljum vér hér
með leyfa oss að sýna fram á, að nefndarskipuninni í ýmsum
greinum er svo varið, að félaginu eigi gefst kostur á að koma
fyrir sig þeim gögnum, er málið krefur.

það eru einkum þau ákvæði nefndarskipunarinnar, er bjóða
að stefnuna skuli birta fyrir umboðsmanni félagsins á íslandi og
að þar skuli dómurinn upp kveðinn, sem koma félaginu í mesta klípu.
fessi ákvæði varna félaginu réttar þess, er lögin heimila

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:32 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/3/0103.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free