- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Þriðja Bindi /
119

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

118 SICÚLI LANDFÓGETI MAGNÚSSON.

119

um að fá að sjá innkaupsverð þeirra í vörulistanum, er þeir
kröfðust þess við skoðunargerðina til þess að geta lagfc
sannsýni-legt verð á þær. Var Skúla veitt þetta og nefndarskipun send
6. apr. 1770 Jóni varalögmanni Ólafssyni (varalögm. s. og a.
1758—1767, og n. og v. 1768—1777) og Jóni sýslumanni
Arnórssyni.1

Jpegar til kom gátu þeir Jón Ólafsson og Jón Arnórsson
ymsra orsaka vegna eigi mætt, enda áttu þeir leið mjög langa.
Péll þannig andstefnusökin niður, en hinir 2 dæmdu málið og
dæmdu að öllum hinum uppteknu vörum skyldi skilað aptur eða
fullu andvirði þeirra, og málskostnað allan skyldu
upptektar-inenn gjalda.2 Skúli stefndi málinu fyrir hæztarétt, en
nefndar-úrskurðurinn var þar staðfestur og því bætt við, að
upptektar-menn skyldu gjalda einn fyrir alla og allir fyrir einn.

|>egar að gjalddaga kom, neitaði Skúli með öllu að gjalda
sektina og eigi var heldur nærri því komandi, að hann skilaði
aptur vörunum. Verzlunarfélagið varð því að taka til sinna
ráða að ná peningunum og gerði Lindberg málafiutningsmaður
þess ráðstafanir í þá átt. Fór Guðmundur sýslumaður
Runólfs-son eptir beiðni hans til Viðeyjar 17. ágúst 1774 og bjóst að
taka lögtaki hjá Skúla til fullnægingar hæztaréttardómnum. Var
upphæð sektarinnar 312 dalir. Skúli var nýfarinn til
Bessa-staða, er sýslumaður kom, og varð því Jón sonur hans fyrir
svörum. Sýslumaður ítrekaði þá kröfu félagsins, að vörunum
væri skilað aptur, en Jón kvað þess enga von. Til allrar
óham-ingju fyrir verzlunarfélagið hafði Thodal stiptamtmaður skipað
svo fyrir, að áður nokkur aðför væri ger að fé Skúla til
full-nægingar kröfum félagsins, skyldi lagt hapt á alla muni hans
og þeir virtir til tryggingar opinberum sjóðum, er Skúli hafði
undir hendi, því stiptamtmaður þóttist hafa fundið 1500 dala
rýrð í sjóðum hans. í>ó bauðst hann til að faila frá þessari
kröfu svo framarlega sem Skúli vildi útvega gilda ábyrgð, en
Skúli kvað náttúrlega nei við því. Var nú tekið að virða muni
Skúla, en þeir reyndust er til kom eigi jafn miklir og menn
höfðu vænt eptir. Hafði Skúli fyrir nokkrum árum síðan í votta
viðurvist afhent Jóni syni sínum búið í Viðey með öllum
pen-ingi kvikum og dauðum og húsbúnaði öllum. Jarðagóz hans

1 Sjá Lovsaml. f. Isl. 3. B. bls. 646.

8 Sjá Espólíns Árbæknr X, bls. 103.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:32 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/3/0129.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free