Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
24 SKÝRSLUR OM SK.APTÁ RGOSIN.
§ 13. Sú syðri eldkvíslin, sem suður iijelt um þana
gamla Skaptárfarveg, stefndi á Landbrotið, rumlaði þar um
hraun og hæðir allt austur fyrir svo kallaða Vaðhellu, tók þar
af mikið melapláz, sem fylgdi Hraunsjörðum í Landbroti, gekk.
svo til landsuðurs í þann djúpa farveg, sem er fyrir vestan
Lútandafit og í þá stóru eyðihvilt, sem er þar fyrir vestan
og útsunnan í Efri Steinsmýrar landi, hvar eð var til forna
yfrið gott veiðivatn, er Skaptá hafði aftekið í einu hlaupi
(og þar svo góð silungaveiði var í því óg Steinsmýrarfljóti,.
f’undu papiskir príorar hjer á klaustrinu sjer tilefni af því,
að láta Steinsmýrar- og Fljóta-bændur gjalda sjer 60 skjólur
af seltu eða söltuóum silungi, eins og Wilchins máldagi sýnir)..
Þegar eldurinn hljóp á þennan veg, fór presturinn síra
Jón Hjaltalín alfarinn burtu frá Kálfafelli vestur að Hvammi
í Norðurárdal, þá flúðu og fleiri bændur að fá sjer jarðnæði,
hvar þeir kunnu, því þeir óttuðust enn, að eldurinn mundi
hleypa fram í sjó og teppa svo fyrir alla umferð. Sumir
gáfu frá sjer alla aðdráttaferð, sumir ferðbúnir sneru aptur
til kvenna og barna, til að bíða eptir að sjá, hver endalykt
yrði á eldsins takmarki, og ætluðu þá, ef hann hefði í sjó
hlaupið, að flýja á austurlandið. Aðrir fóru í ferðir að koma
aðdráttum sínum sem næst meðan hestar voru tii, og varð
svo af öllum þessum vandræðum afráðið, að jeg og
klaustur-haldari skyldum heima i sókninni blífa, til aðstoðar og úrræða,
í því sem upp á koma kynni, en svo fór, að sá almáttugi
stjórnari ljet eldinn hjer stanza og eptir verða einn rima milli
eldsins og ófærra kýla og flóða, að ferðafólk gæti til og frá.
um hann komizt til nauðsynlegra útrjettinga, meðan Eldvatnið,
sem framkom, færði ei sand í torfærurnar, og þá þær
skemmd-ust, var brúkaður einn bátur á fljótið.
§ 14. Sú vestasta eldkvíslin, sem fjell í farveg
Landá-arinnar, tók nú af Botna, 12 hdr. að dýrleika og uppbrendi
þar öll bæjarhús, var þá austanvindur með regni, og lagði
þá eldgufuna vestur yfir Mýrdal, fann jeg þá og aðrir, sem
þann dag vorum á ferð, trjáviðarlyktina í Steigarhálsi, sem
er rúm þíngmannaleið þar frá, svo dreifði þetta eldflóð sjer
yfir Austari og Ytri Asaland fyrir framan háls þann, er þær
jarðir á standa, tókst þar af og yfirþaktist með hrauni engjar,
hagar og melapláz, sem þeim jörðum þar fylgdi, sjerdeilis
Austari Ásum. Hjelt svo þetta eldflóð í Kúðafljót, og fyllti
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>