- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Fjorða Bindi /
72

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

72

SKÝRSLUR OM SK.APTÁ RGOSIN.

Oktober. iPó tók yfir þann 17. og 18. Julii, þá sú önnur eldgjá’
upp sprakk fyrir norðan Siðuna að austanverðu, þvi þá þenkti’
enginn annað en himin og jörð mundu þá og þá kollsteypastr
sem varði í þrjú heil dægur. En síðan í Oktober hafa menn
ei orðið varir við jarðskjálfta, dýnki né lopteldingar til riða,
heldur er nú eldurinn að renna sem bræddur kopar öðru
hverju fram úr fjallinu á báðar síður við Siðuna, sem
alla-reiðu er búinn að aftaka alla manna vegi austur og vestur,
en loginn í fjallinu allstaðar hér fyrir norðan er enn
yfir-máta mikill, með sífeldri svælu og reyk, bæði uppúr eldgjánum
og eldhrauninu, sem í byggðinni hér á báðar síður, og ei
sjáanlegt að slokkni á næsta ári.

Heyskapur var hér í sumar í hreppnum mjög litill eður
snart enginn, lika og hér annarsstaðar í sýslunni, sem
austur-partinum, og það lítið hjá okkur hér fékkst gagnfordjarfaðisf
af brennisteinsólyfjaninni. Allt fé, kýr og hestar í öllu þessu
plássi eður hrepp að mestu dautt, fé og hestar hlupu strax í
sumar burt út i veðrið, sumt drap sig i vötnum, sumt brann
upp af eldinum hópum saman, sérdeilis fé og naut, en það
siðan fundist hefir, hafa menn verið daglega að skera til matar,
þvi ei er annað iífsmeðal hjá flestum; engin mjólk, sýra,
smjör, eður nokkur feiti af skepnunum, hvorki hjá mér né
öðrum. Einir 11 fjórðúngar smjörs hafa goldist af þeim
til-baka verandi klausturjörðum í ár, í staðinn fyrir 2 hdr. 115
fjórðunga að undanförnu, því þeir fáu, sem tolla við
einstöku-jarðir, gjalda ekkert. Af 14 kúm, eg átti í vor, lifa eptir 2,.
nú allt reisa; af 40 hestum fáeinir skinhoraðir, en enginn i
vor, og þeir 3 reiðhestar, eg átti, eru og allir dauðir.

(Þetta máske úr öðru bréfi)1).

Fólk er nú bæði í 3?ingeyjarþingi og Vaðlasýslu farið
að deyja af hor og hungri, fjöldi öldungis kýr- og kinda- samt’
hestlaust, og enginn meinast vikafært hross eiga muni í
þessum sýslum á suinarmálum. Þegar fólk er búið að uppeta
þá um viðan vang fallna horskrokka, má það falla. Fjöldi’
jarða leggjast í eyði og allar verkanir nærverandi óskapa eru
enn nú óséðar. Úr Múlasýslu er nokkuð skárra upp á jarðir
og snjó, sem í manna minni hefir ekki í þessari sýslu svo-

1 Svo i hdr.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:54 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/4/0084.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free