Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
192 SKÝRSLUR UM KÖl’LUGOS.
267
Ofan á nær því frostalausan og snjóalítinn vetur, alt
fram um sumarmál 1823, fylgdi í kaldara lagi vor, að
fram-anverðu óstöðugt, snjóasamt með hörðum frostaköflum og
land-norðanstormum, þá líkara lagi gróðri hér eystra nálægt
fjöllum, þangað til um trínitatishelgi, seint í maímánuði, að
veðrið snerist upp í stöðuga norðlæga þyrringa með
nátt-frostum og sífeldum brælum — eða þræsingsvindum á
aust-an eða vestan, hvort heldur loftið var þykkfengið eða
heið-ríkt, svo nú tók nálega fyrir gróður, er menn mest kendu
um hafísum, til hverra fréttist úr Múlasýslu, kringum
Langa-nes til Hornafjarðar, jafnvel síðast \ aprílmánuði. Vertíðar
fiskirí var hér í Mýrdal í betra lagi en alt fiskikyn óvenjulega
magurt og lifrarlítið, hvað þá helzt var eignað þeim í
fyrra-vetur geysandi eldi í Eyjafjallajökli, jafnvel þó menn ekki til
vissu hann síðan næstl. jól (1822) gosið hefði öðru en
hvít-um vatnsgufureyk. Eftir því tóku fleiri en færri á ofanverðu
sumri 1822, að allur austari hluti Mýrdalsjökuls um kring og
niður frá Kötlugjár afstöðu var sem lækkaði, svo ýmsir
hnjúk-ar þar í nánd virtust komnir fram, er ei sáust áður. Pó var
auðsýnileg þessu samfara einhver þurða í jökulvötnum á
Mýr-dalssandi alt þetta vor, fram undir hlaupið, svo að í Múlakvísl
og Eyjará, sem koma undan vestanverðum Kötlufalljökli, hvar
oftast hefur hlaupið, sást ekki jökulvatnslitur og lítið eitt í
Leirá.
Þann 26, júni sama ár um morguninn einsog nokkra
daga á undan, eindræg norðanátt, þó hér vestra ekki sérlega
hvast, en jökullinn í fult norður frá Vík svo óvenjulega
bunk-aður hvítuni skýjum, hverju á bak við annað og ofan á öðru
eins og ofsaveður eða mesti kafaldsbylur væri í vændum, úr
hverju þó ekkert varð hér, heldur fór sem sjatnandi fram um
miðjan dag, gjörði hægviðri og útrænu vestra, en þó áttin
væri einlæg norðan. Eftir dagbók Austmanns prests var þar
allan þennan dag talsverður vindur af norðri með ónotaleg-
af Rangárvöllum og úr Eyjafjallabreppi austanveröum, liafi skrásett,
og á sinni tíð meðdeili það þeir sáu og aðgættu. — Tilburðir þessir
eru þó þess verðir að í áreiðanlegar frásögur séu færðir, eftirkomendum
til verðugrar uppvakningar um bans mikilleik, sem minna hefur fyrir
að stýra þeim ógurlegu höfuðskepnum og halda þeim innan réttra
takmarka, en ritarinn að letra það hann sá og heyrði.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>