Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
296
UM SKATTBÆNDATA L 1311. 300
í Sunnlendingafjórðungi telur skráin skattbændur:
sviijc. xxx. oc viij menn» = (8.120 -)- 38) =..... 998.
Skattur úr sama fjórðungi er talinn:
«lxxxc. oc .ijc. oc .xx. alner« (= 82 hundruð
og 20 álnir) =.............................. 9860 álnir.
Hjer vantar skattsupphæðina rjett tólfrætt hundrað
álna upp á að vera tíföld við skattbændatöluna; verður því
annaðhvort að hækka skattinn um eitt hundrað eða fækka
skaltbændunum um 12 til að fá samræmi. Hið firra er minni
breiting á textanum og því líklegra. Ekki þarf annað enn
rita iijc firir »ijc« í skattsupphæðinni1); þá kemur alt heim.
Verður þá skatturinn 83 hundruð og tuttugu álnir = 9980 álnir.
Að því er snertir hinar einstöku síslur í Sunnlendinga
fjórðungi, látum vjer Borgarfjörð, sem skiftist milli hans og
Vestfirðingafjórðungs, liggja milli hluta first um sinn. Að
Borgarfirði frá skildum skiftist Sunnlendingafjórðungar í 2
síslur:
1. Milli Jökulsár (á Sólheimasandi) og Þjórsár, o:
Bang-árvallasísla, og líklega þar með Vestmannaeijasísla.
Þar teljast skattbændur: »cc. xx, oc viij menn« = 268
2. Milli Þjórsár og Botnsár, o: Arnessísla og Gullbringu-
og Kjósarsísla. Þar s.kattbændur »d. oc .lx.« =... 660
Samtals milli Jökulsár og Botnsár.... 928
Skattbændatalið í öllum fjórðungnum var 998. Þegar
skattbændurnir milli Jökulsár og Botnsár eru dregnir frá
þeirri tölu, verða eftir 70, og ætti það eftir þessu að vera
tala þeirra skattbænda er bjuggu í þeirri sneið af Borgarfirði,
sem liggur í Sunnlendingafjórðungi, eða í takmarkinu milli
Botnsár og Hvítár. Þetta virðist vera óhæfilega lág tala, og
er hjer því eitthvað bogið. Enn best er að láta bíða að ráða
fram úr því first um sinn.
I B-textanum hefur á þessum staö upphaflega verið skrifað
„Lxxxvijc", enn svo hefur ritarinn dregið út v-ið; í frumriti því,
sem hann skrifaði eftir, getur verið, að u-ið hafi elcki verið dregið
út. heldur leiörjett í i, og hefði þá í jjessu frumriti staðið
„Lxxxiijc", og stirkir jjetta getu mína. I fornum handritum eru
ofritaðir stafir sjaldan numdir burtu meö jm að draga ofan í þá,
heldur með því að setja púnkt undir þá.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>