- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Fjorða Bindi /
448

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

448

bæjanöfn á íslandi. 414

Viðurnefni eru (um sum vita menn glöggt, koma fyrir
í L og sögum): agnúi, annmarki, auðkúla, auga, beigaldi,
belgur, blesi, bliki, boli, bóndi, botti, brúðgumi, bægir, böggvir,
dattur, dofi, dratthali, fallandi, felok- (?), fifa, flangi, flatnefur,
flysja, gaddur, gagur, glammi, glettingur, glý, gneisti, gnýr,
goddi, grákollur, grenjuðr, gullberi, háleggur(?), hani, harður,
hegri, heykollur, hingli (?), hnekkur, hrak, hvítur, höggvandi,
jarðlángur, kambur, kampi, kappi, kimbi, kjói, kjóll, klafi,
klaufi, knappur, konúngur, kópur, korni, kotúngur, kráka,
krínkill (?), krókur, krappur, krýni(?), kúgaldi, kukkr (kúkr?),
kvikur, kýrauga, lambableikur, lángur, ljósbleikur, loddi, loki,
lómur, læknir, moli, mori, mosi, ófriður, orri, páfi, rauðkollur,
rauðnefur, selur, silfri, skáld, skalli, skálpi, skammbeinn,
skammur, skegg, skeifa, skinni, skjögri, skræpa, skrafla, sleggja,
sleita, snæðíngur, snæfogl, snældubeinn, sómi, spámaður, spói,
stólpi, strábeygíngur, strúgur, sveigir, sviðníngur, titlíngur,
trjegrefur, trymbill, vafri, vari, vomúli, þjófur, þorri, þurs (alls
um 100).

Keltnesk nöfn eru: Bekan, Dunkaður, Galman, Gilli,
Kaðall, Kjaran, Kjarlakur, Kjartan, Kjarvalur, Konáll,
Mjöl-brigða.

Ýngri og útlend nöfn: Jón, Láfranz, Stefán. Sýna þau,
að staða-nafnamyndunin er ekki bundin við landnámsöld, og
er óhætt að segja, að hún hefur verið lifandi alla tíð.

Kvennanöfn. Sjaldgæfari eru: Algerður, Arnkatla,
Arn-fríður, Ásunn, Bera, Birna, Dana, Fannlaug, Gestreiður,
Gunnfriður, Gunnlaug, Gunnvör, Hallbjörg, Hróbjörg, Hróðný,
Iðunn, Ingvör, ísleif, Járngerður, Kjölvör, Kýrunn(?), Kanga,
Ljót, Ljótunn, Ljúfa, Lúka(?), Mýriður, Ormlaug, Oddkatla,
Ósk, Svala, Tóka, Torfa, Þorkatla, Æsa.

Viðurnefni: böng, dís, hvít, kerlíng, kinn, strylla.

Keltneskt er: Melkorka. — Yngra: Úrsúla.

Eins og sjá má af því, sem skrifað hefur verið, hefur
fyrri liður orðsins oft breyst og aflagast í framburði, svo að
oft væri nú ómögulegt að geta sjer til hins rjetta, ef ekki
væri eldri ritháttur til. 3?ar á móti breytist staðir aldrei (je8
skil staður öðruvisi, þar sem það stendur fyrir staðir), nema
í 3 nöfnum í AM; þar eru tilfærðar myndirnar: Draftastir,
Guðrúnastir, Krýnastir — alt í XVII, og eru það samdregnar
myndir, sem víst hafa ekki getað haldist, en samdrátturinn

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:54 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/4/0460.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free