- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Fjorða Bindi /
588

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

588

ferðir, siglingar og samgöngur.

í Normandíinu skjótt að tala frakknesku, og hefur »dönsk
tunga« varla haldist þar miklu lengur en austur i Garðariki.
Landnám Dana eða Normanna á Frakklandi hafði þó mjög
mikla þýðingu í sögu og menningu Evrópu á miðöldunum.
Á 11. öld fóru ýmsir Normannar þaðan til Suður-Ítalíu og
settu þar nýlendu á stofn í Aversa (1029). Síðan færðu þeir
út kviarnar og komu þar ríki á fót. Gerðist Robert
Guisc-ard (f 1085) fyrstur hertogi yfir því og var hann voldugur
höfðingi. — Einnig vann Vilhjálmur bastarður Rúðujarl
Eng-land (1066) og íbúar Normandisins tóku allmikinn þátt í
kross-ferðunum; hafði það hvorttveggja mikla þýðingu.

íslendingar hafa eigi enn athugað það rækilega, hve
þýð-ingarmikið það var í raun rjettri fyrir forfeður vora, að ein og
hin sama tunga gekk um öll Norðurlönd og í öllum
norrænum bygðum eða nýlendum, og að
samgöngu-færi manna í öðrum löndum voru þá eigi skjótari
en á íslandi. Þeir hafa eigi heldur athugað það sem skyldi,
hve timarnir hafa breytst siðan á söguöldinni, hagur manna
og hugsunarháttur, rjettarskoðun og löggjöf og rikjaskipun.
Öll innbyrðis afstaða rikja og þjóða hefur jafnframt breytst
gjörsamlega. Fornar og frægar þjóðir á miðöldunum hafa
liðið undir lok og af rústum smáríkjanna á miðöldunum hafa
risið upp stórveldi.1) Samgöngufærin hafa breytst svo
stór-kostlega í öðrum löndum, að nú fara menn það á fáum
klukkustundum, sem áður þurfti til vikur eða mánuði eða
jafnvel ár. Nú geta menn daglega átt viðskipti saman i
fjar-lægum löndum, þar sem samskonar viðskipti tóku áður
heil ár. Meira að segja, nú geta menn átt dagleg viðskipti
við menn i öðrum heimsálfum, sem enginn vissi að væru til,
þá er þjóðveldið leið undir lok á íslandi.

Þá var mestur hluti jarðarinnar öllum ókunnur. Menn
hjeldu eins og Snorri Sturluson segir, að jörðin væri kringla,
»kringla heimsins«, og þessi kringla var eigi nema Evrópa,
norðurhlutinn af Afríku og rúmur helmingurinn af Asiu.
Utan um jarðarkringluna liugðu menn að úthafið lægi. Nú

Á fýskalandi voru hjer um bil 400 ríki á, miðöldunum og nú
er það alt að heita má eitt. stórveldi.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:54 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/4/0600.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free