- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Fjorða Bindi /
630

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

630

FERÐIR, SIGL1NGA.R OG SAMGÖNGUR.

hans; þó er þess eigi getið í sögu konungs. Pá er Hallur
var þritugur, gerði hann bú í Haukadal og bjó þar 64 vetur.1)
Nú hafa hjer verið taldir rúmlega 70 Islendingar, sem
voru í förum landa i milli eða erlendis á söguöldinni. Margir
af þeim eru í sögunum kallaðir farmenn og sumir
far-drengir; sumir þeirra eru nefndir siglingamenn, sem
þýð-ir sjóferðamaður, eða hið sama sem farmaður eða fardrengur.
í Snorra eddu (I, 530) er fardrengur skýrt á þennan hátt:
»]?eir heita fardrengir, er milli landa fara.« Nokkrir af
mönn-um þessum eru og kallaðir kaupmenn. Opt kveða
söguritar-arnir og öðru vísi að orði um menn þessa, og segja að sá eða sá
maður, sem frá er greint, var i förum, eða var í kaupferðum
(eða kaupförum), eða fórlandaámilli, eða var i
sigling-um landa í milli, eða var jafnan sinn vetur hvárt á
Islandi eða i Noregi. En öll þessi orðtæki þýða í raun
rjettri hjer um bil hið sama, enda eru þau notuð jafnt og
eins og af handahófi um þá, sem voru í förum og áttu
kaup-skap við menn. Má nefna hjer nokkur dæmi, sem sýna hvern-

ig þau voru notuð: »Glúmr hafði verit lengi i förum.....

spurði í’órarinn Glúm, hvárt hann ætlaði utan, sem hann var
vanr. Hann svaraði: Hitt hafða ek nú heldr ætlat at hætta
kaupferðum«.2) Hjer er »i förum« notað í Njálu i sömu
þýðingu sem »i kaupferðum«, og er slikt vanalegt. Annað
dæmi má nefna úr Laxdælu: »3?orleikr Höskuldsson hafði
verit farmaðr mikill ok var með tignum mönnum, þá er
hann var i kaupferðum, áðr hann settisk í bú.«3) Hjer er
sá nefndur farmaður, sem hafði verið í kaupferðum; þessi
orð eru notuð í sömu þýðingu. I Valla-Ljóts sögu eru orðin
»farmaður« og »fardrengur«, og »at ráðask í kaupferðir*
notað um Böðvar Sigmundarson. Þórir Skeggjason er
nefnd-ur farmaður í einni sögu, en siglingamaður i annari.4) Um
Hrafn, bróðurson Onundar að Mosfelli, er komist svo að
orði: »Hann var farmaðr mikill ok átti skip, er uppi stóð í
Hrútafirði. Ok um várit reið Hermundr Illugason heiman
einn samt, ok norðr Holtavörðuheiði, ok svá til
Hrútafjarð-ar, ok út á Borðeyri til skips kaupm annanna; kaupmenn
voru þá búnir mjök. Hrafn stýrimaðr var á landi.«5)

’) íslb. 9/13—14; Hkr. I, 7-8; Ól. s. s. 1. 2) Nj. 13/57. s) Lax.
25/87. 4) Ldn. 230; Grett. 38/143. 6) Gunnl. 13/273.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:54 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/4/0642.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free