- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Fjorða Bindi /
711

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

SÖGUÖLDIN.

711

til íslands eptir landnámstíð og bygði hann fyrstur Geirastaði við
Mývatn.1) Þorvaldur Asvaldsson fór með son sinn ungan,
Eirík hinn rauða, af Jaðri fyrir víga sakir til Islands og
bygði bæ að Dröngum í Strandasýslu (um 950).2) Porbjörn
súr fór einnig með fjölskyldu sina til Islands og keypti land
í Haukadal við Dýrafjörð og bygði Sæból (um 955).3) Hjer
um bil 24 árum siðar kom út Ari Súrsson, sonur
Porbjarn-ar, í Hvítá í Borgarfirði. Hann seldi skipið, segir sagan, en
keypli sjer land á Mýrunum og búsetti sig þar.4)

Óttar Þorvaldsson og Ávaldi Ingjaldsson fluttu
til Islands eins og fyr er sagt (um 965)5).

AHir þessir menn, nema ef til vitl Geiri austmaður, fóru
til Islands sökum vígaferla til þess að forða sjer. Pað var
sama ástæðan sem áður hafði knúið marga til þess að leita
þar friðar handa sjer og sínum.

En nú skal nefna ýmsa Norðmenn, sem getið er á
Is-landi á söguöldinni.

Um 944 voru Austmenn á skipi með Þorsteini fagra í
Reyðarfirði, er hann kom út, og segir sagan að hann hafi
selt þeim skipið. Epíir öllum ástæðum að dæma er líklegt að
þeir hafi átt mestan hlut í þvi, af því að árið áður varð
hann að láta Einar iPórisson fá skip sitt, en að hann hafi
átt hlut í því með þeim. Um veturinn eptir keypti hann
sjer skip, sem uppi stóð norður á Melrakkasljettu, líklega i
Raufarhöfn.6) Svo virðist sem hann hafi keypt skip það af
Austmönnum, þvi sagan segir að þeir »vesuðuz illa«, er
þurfti að biða bræðra Þorsteins, ef bvr kæmi á.7)

Pá er Eyvindur Bjarnason kom út (um 950) voru
auð-sjáanlega útlendir menn, liklega norrænir menn, með honum
á skipi, því þess er getið að skósveinn hans hafi verið
is-lenskur.8)

l) Ldn. 20/233; Reyk. 17/87. 2) Ldn. 14/103, 31/156. 3) Gísl.
3-4/7—9. <) Gísl. 37/100. 5) Sbr. aö framan bls. 646. í
Gull-^oris sögu, útgáfu forleifs Jónssonar (Rvík 1878) bls. 39-41, er sagt
að frándur nokkur Hallbjarnarson hafi fyrir vígasakir stokkiö ár
Nor-egi og komið út i Dýrafirði og setst að á íslandi; en það er
ósann-sögulegt og sagan uin það tilbúningur frá siðari tímum, sbr. útg. dr.
-Kálunds af Gull-foris sögu bls. 57. 6) í Porsteins sögu hvita
stend-ur Bolungarhöfn, en það er líklega rangt, sbr. Kálund, Island II,
188-190. ’) Þorst. hv. 10-11. 8) Hrafnk. 8/127—128.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:54 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/4/0723.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free