- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Fjorða Bindi /
733

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

FRIÐAR- OG RIT-ÖLDIN.

733

rúm í himnaríki, sem standa mætti i kirkju þeirri, er hann
Ijet gjöra. En er kirkjur voru gjörðar, vantaði presta til að
veita tiðir við þær, þvi að þeir voru þá fáir,1) og var þá
reynt að bæta úr því. Pannig var hvert verkið á fætur
öðru unniö til þess að efla kristindóminn i landinu.

Fyrirheit kennimanna hafði mikil áhrif á menn. Peir
buðu betur en Ásatrúin. Höfðingjar landsins gátu nú farið
til himnarikis við stærra föruneyti en forfeður þeirra til
Valhallar. í kringum aldamótin 1200 Ijet Páll Jónsson biskup
telja kirkjurnar i Skálholtsbiskupsdæmi og voru þær 220.
Eptir hans reikningi þurfti 290 presta til þess að syngja tíðir
i þeim öllum og gegna öðrum prestverkum í
Skálholtsbiskups-dæmi.2) Með þvi að Norðlendingafjórðungur var stærstur og
fjölmennastur, má ætla að þar hafi eigi verið minna en 100
kirkjur og um 130 prestar, eða á öllu landinu eigi minna en
um 320 kirkjur og um 420 prestar.3) Sýnir þetta, hve mikla
stund menn höfðu lagt á að reisa kirkjur og að mikið hefur
verið gert til að efla kristnina.

Margt stóð við hið sama og gekk líkt og áður, en þó
var unnið svo mikið á þessu timabili til þess að koma
kristninni og kirkjunni á fót og i fast horf, að vel mætti
kenna það við uppgang hennar og skipun; að jeg hef eigi
gert það áður hefur meðfram komið af því, að ekkert stutt
orð, eins og friðaröld og ritöld, er til um það.’4)

Pað segir sig sjálft að hinir bestu kennimenn áttu opt
marga og mikla erfiðleika að stríða, er þeir voru að
Tenja landsmenn við lög kirkjunnar, eigi sist i
hjúskaparmál-um. Er einkum getið um þá nauð, sem ísleifur biskup átti
1 sökum óhlýðni manna, ósiðu og ofsa.5) Sumir menn
lögð-Ust þá út i víking og á herskip, þrátt fyrir aít bann. S’að
v&r lika erfitt að venja menn af vígaferlum, og átti rjettar-

’) Eyrb. 19/92. 2) Páls s., Bps. I, 136. 3) Jón Sigurösson,
Pélagsrit II, 87, hefur ætlaö að 110 kirkjur og 140 prestar liati
j’á verið í Norðlendingafjórðungi, en það er heldur mikið eptir
þing-"«endatalinu aö dæma. 4) Oröið gullöld á hjer og eiginlega hvergi

V1ð í sögu íslendinga. fað er annars komið upp á þeim tímum, er
menn höfðu mjög einstrengingslega og heldur litla sögulega
þekk-®gu og mjög skakkar skoðanir á sögu og æfi mannkynsins. Menn
Jugðu að alt hefði verið svo gott og ágætt á gömlum, fjarlægum
tim-einkum þeim timum, sem einliver herfrægð fór af. 6) Hungr.,
I, 62.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:54 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/4/0745.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free