- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Fjorða Bindi /
842

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

842 ferðir, sigl1nga.r og samgöngur.

Aðalheimildarritið um Sturlungaöldina er hið mikla
sögu-safn Sturlunga saga ásamt Hrafns sögu Sveinbjarnarsonar og
Arons sögu Hjörleifssonar. Auk þess eru ti! samskonar
heim-ildarrit sem um 12. öldina. biskupa sögur, Noregs konunga
sögur, annálar og brjef. Flest eru heimildarrit þessi
áreiðan-legri en sögurnar um eldri tima, því að þau eru rituð eigi
mjög löngu síðar, en viðburðir þeir gerðust, sem þau segja
af. ]?að má því fá bæði meiri og miklu áreiðanlegri
þekk-ingu um Sturlungaöldina, en um undanfarandi aldir af sögu
Islendinga.

II. Islenskir kaupmenn.

Af því að rannsóknir þessar eru upphaflega gerðar til
þess að fá vitneskju um, að hve miklu leyti íslendingar
sjálf-ir ráku verslun sína við önnur lönd, skal ferðum þeirra á
Sturlungaöldinni skipt á likan hátt sem áður, enda þótt
eðli-legra væri að flokka þær öðruvisi. Pad stingur nú í stúf við
það, sem áður var, því að í öllum hinum miklu
heimildar-ritum, sem eru til um Sturlungaöldina, er hvergi getið um
neinn kaupmann eða farmann, sem sagt er um, eða sjá megi
um með vissu, að hafi verið islenskur; má af því ráða, að
margir islenskir kaupmenn hafi þá ekki verið til, og að
Is-lendingar sjálfir ráku nú mjög litla verslun við önnur lönd.

Arið 1246 er nefndur Pórir tottur Arnþórsson (eða
Arndórsson) með Gissuri Þorvaldssyni; fór hann meðal
annara manna á milli þeirra Gissurar og Þórðar kakala, til
að koma á sættum. Þórir hafði þá skip á Eyrum. Gissur fór
þá utan á Eyrum um sumarið, og er því líklegt að hann
hafi siglt með Þóri, þótt þess sje eigi getið nje neitt meira
sagt af Þóri i það sinn. Um ætt Póris er ókunnugt. Nafnið
Arnþór (eða Arndór), er mjög sjaldgæft á Islandi; er eigi
getið neins manns með því nafni nema Arnþórs austmanns,
sem fyr er nefndur. Það er eigi ómögulegt hvað tímann
snertir, ef Arnþór hefur orðið aldraður maður, að hann
hafi verið faðir Þóris, eins og getið hefur verið upp á, en
um það vita menn ekkert með vissu. Hins vegar getur sú
tilgáta eigi verið rjett, að Ragneiður Þórhailsdóttir, kona
Arnþórs, hafi verið móðir Þóris totts, því að iPórir mun
eigi vera fæddur fyr en um eða eptir 1210, en þá var hún
nálægt hálfáttræðu, ef hún hefur verið á lifi.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:54 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/4/0854.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free