Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
sturlungaöldin.
857.
ferð, nema þvi að eins hann hafi farið utan áður en hann
gerðist fylgdarmaður Hálfdanar Sæmundarsonar og Pórðar
kakala.1)
Konungur hjelt Gissuri eptir i Noregi og skipaði honum
sýslu norður i Þrándheimi, en hann undi lítt hag sinum og
hann skorti fje. Hann rjeð það þá af, að hann fór af landi
brott og gekk suður til Róms og með honum Broddi
Þor-leifsson, bóndi að Hofi á Höfðaströnd, er þá var í Noregi,
Onundur biskupsfrændi, Þorleifur hreimur, Auðun kollur og
Árni beiskur. Þeir komu allir heilir aptur til Noregs liklega
árib 1248.2) Gissur fekk af páfa lausn allra sinna mála. 1251
skipaði konungur Gissur yfir allan Norðlendingafjórðung
fyr-ir vestan Vaðlaheiði, og ætlaði hann þá til íslands ásamt
Þorgilsi skarða og Heinreki biskupi, en skip það, sem þeir
voru á, varð apturreka til Noregs og braut. Þeir voru í
Þrándheimi um veturinn. Sumarið eptir (1252) fóru þeir
Gissur til Islands á skipi Eysteins hvíta og margt íslenskra
manna.3)
Árið 1249 fór Þórður kakali suður á Rangárvelli, og
neyddi þá bræður Harald Sæmundarson í Odda og
Ph ilippus, bróður hans, að Hvoli til þess að fara utan
um sumarið á fund Noregs konungs. Einnig rak hann þá
Orm Bjarnarson á Breiðabólstað utan, og mun hann
hafa gjört það i sömu ferðinni. Ormur andaðist árið eptir i
Noregi, og segir ekki nánar af utanferð hans. Sæmundarsynir
gáfu upp goðorð sín í vald Hákonar konungs, og voru með
honum í tvo vetur. Konungur gaf’ þeim þá orlof til íslands,
’) Sturl. H, 118, 160, 9. 2) í Konungsannál og Skálholtsannál
segir, að Gissur forvaldsson færi 1247 til páfa; ef það er rjett, hefur
bann lagt af stað þá um haustið, er f órður var farinn til íslands. í Sturl.
II, 132 segir, að Gissur fengi orlof af Hákoni konungi, að fara til
ís-lands, er hann hafði þrjá vetur verið í Noregi eptir það, er hann
kom úr Eómaferð sinni. Eptir þvi hefði þuð átt að vera 1249, því að
í Sturlungu er þess ekki getið, að Gissur fekk orlof 1251 og varð þá
«ptuireka. En ef til vill» hefur það geymst rjett í sögusögninni, að
prir vetur hafi liðið frá apturkomu Gissurar að sunnan i jNoreg og til
orlofs hans til Islands, svo að telja eigi frá 1251, og setja eigi
suður-göngu hans 1247-1248 eða jafnvel 1248. f>að fellur einnig vel við
ára-talið i æfi Gissurar síðar í Sturlungu, II, 302. 5) Sturl. II, 132—133,
150, sbr. 302; Fms. X, 45, 51; Frís. 541, 543-44; Eirsp. 421, 424; Flat.
IIJ, 182, 185; Ann. I, III, IV, V.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>