Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
888
ferðir, sigl1nga.r og samgöngur.
stundum nefnd hin eystri leið til aðgreiningar frá þeirri leiðr
er lá úr Normandíi suður Frakkland, og var þá nefnd hin
vestri leið.1) Stundum fóru menn og sjóveg frá Noregi til
Frislands (Hollands), og tóku staf og skreppu og vígslu til
Rómaferðar í Útrekt eða Deventer. Fyrir norðan Alpafjöllin
mættust vegir og menn úr ýmsum áttum, og fóru Stóra
sankti Bernhard yfir fjöllin. Frá Róm rekur Nikulás leiðina
suður ítaliu til Jerúsalem og nefnir helstu bæi á
Gyðinga-landi.2) Sænskir pílagrímar fóru framan af um Bússland og
Grikkland (austrómverska keisaradæmið) til Jórsala,3) og
for-valdur viðförli lagði heimleið sina frá Jórsölum um
Mikla-garð og Kænugarð til Garðarikis, en leið þessi varð snemma
of hættuleg fyrir friðsama pilagrima. Hún var gamall
versl-unarvegur fyrir þá menn, sem búnir voru til bardaga, er á
þurfti að halda, og vikingavegur. íslenskir pilagrimar fóru
því ekki þessa leið, enda lá hún eigi vel við fyrir þá, og
eigi heldur vestustu leiðina, sjóleiðina suður um Spán,
nema fáeinir menn, sem slógust i för með norrænum
höfð-ingjum, svo sem Rögnvaldi kala Orkneyjajarli.
Margir urðu til þess að greiða för pílagrímanna. I
klaustrunum fengu þeir ókeypis greiða. ] Benedikts-klaustri
nokkru í ey einni i Rin, þar nálægt sem hún fellur úr
Bodenvatni, var bók ein, sem kölluð erBræðralagsbók
(Li-bellus societatum Augiensium), og i voru rituð nöfn þeirra manna,
sem komu þangað (»lifandi vina«, »amici viventes«) á
tima-bilinu um 850—1250.4) Klaustur þetta og eyja var auðug
og því nefnd Eyjan auðga, »Augia dives« á latinu,
Reichen-au á þýsku. í Bræðralagsbókina voru rituð nöfn 39 manna
frá íslandi (Hislant terra). ]?að hafa verið suðurgöngumenn,
Rómferlar. Nú er eigi hægt að segja hverjir þeir hafa verið,
>) Nj. 158-59,906-907. 2) Alfræði, bls. 13-23. 3) Guta
saga utg. af Hugo Pipping. Kbh. 1905—07, bls. 66. 4) Antiquarisk
Tidsskr. 1843-45, bls. 67-75; Dipl. I, 170-72; P. Dyrlund í Aarb.
f-nord. Oldkh. 1885, bls. 321—322. — Frumritið af Bræðralagsbókinni
týndist um aldamótin 1800, en ein afskrift er til af henni, tæplega
áreiðanleg. Lengi hjeldu menn að bók þessi væri liin sama sem
Artíðaskráin úr Eynni auðgu, »Necrologium Augiae divitis«, og
eptir því fór Jón Sigurðsson i Dipl. Artíðaskráin er gefin út af F. L.
Baumann í Monumenta Germaniae historica. Necrologia Germaniae I,
1888, bls. 271—282.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>