- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Fimta Bindi /
3

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Formáli.

Vorið 191.’5 las jeg Sólarljóð með lærisveinum mínum
við háskólann, og komst jeg þá að sumu leiti að annari
niðurstöðu enn þeir, sem áður höfðu skírt kvæðið, bæði
um skilning á kvæðinu i heild sinni og á einstökum
stöð-uin þess.

í birjun næsta árs (1914) barst mjer í hendur 1. heíti
af hinu níja norska tímariti, er nefnist »Edda«. Þar las
jeg ritgjörð eftir hinn norska vísindamann Fredrik Paasche,
sem beinist sjerstaklega að Sólaiijóðum (»St. Michael og
hans engle. En studie over den ældre katolske
skaldedigt-ning, Draumkvædet og særlig Sólarljóð«, Edda, 1914, 33.
—74. bls.). Mjer var það mikið gleðiefni að sjá, að þessi
maður hjelt fram mjög líkum skoðunum og jeg liafði
lialdið fram árið áður um kvæðið í lieild sinni og skirði
suma staði alveg eins og jeg, þó að hvorugur vissi um
rannsóknir hins. Ritgjöið hans ber vott um dæmafáan
fróðleik í kristilegum miðaldaritum og miðaldakvæðum,
bæði islenskum og útlendum; hún er laus við alia
hleipi-dóma og rituð með þeim hlíleik og þeirri samúð
gagn-vart kaþólskri trú feðra vorra, sem enginn skírandi
Sólar-ljóða má án vera. Síðar hefur Paasche skírt Sólarljóð enn
nánar i hinu merkilega riti sinu Kristendom og kvad, en
studie i norron middelalder, Kria 1914, 135.—171. bls.

Loks barst mjer nú í vor níútkomin útgál’a
Sólar-Ijóða eftir Hjalmar Falk, prófessor við háskólann í
Ivristí-aníu (Sólarljóð av Hjalmar Falk, Kristiania 1914.
Viden-skapsselskapets skrifter. II. Hist.-filos. Klasse 1914. No. 7).
Þeirri útgáfu filgja mjög svo fróðlegar skíringar og
at-hugasemdir.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:05:26 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/5/0015.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free