- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Fimta Bindi /
57

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

nr. 1

sólarljóð

57

í 6. kafla segir sálin frá því, sem firir hana bar,
þegar hún að lokum kom til bimnaríkis.

69: umbun þeirra, sem hafa gefið til guðs þakka (til
kirkna, klaustra osfrv.). Að þetta efni er sett first, bendir
sterklega til, að höf. hafi verið klerkur.

70: umbun þeirra sem gáfu fátækum ölmusu. —
704-6: textinn hefur ruglast, af því að afskrifarar settu
inn himna (af liiminnj firir ymna; við það raskaðist
stuðlasetningin, sem menn reindu að bæta úr með þvi að
setja helgar inn i 4. vísuorð. — ymna skript: hjer er víst
átt við »engla ymnann« Gloria in excelsis, sem svo er
nefndur af boðskap englanna (Lúkas 2, 14), sjá Stokkh.
Hom. 12222: En þá tók fjölði engla undir siðan ok sungu
orð þessi, er nú heitir engla ymni: Gloria in excelsis. —
helgar á vist bæði við bœkr og ymna skript (nema helgar
sje villa firir helga?/.

71: umbun firir föstur.

72: umbun þeirra sem veita vegmóðum ferðamönnum
beina. Slíkt þótti vænlegt til sáluhjálpar. Um 1100 stofna
hjónin Tanni og Hallfríðr sælubú á Ferjubakka við
Hvitá, þar sem mikil umferð var, og leggja svo firir, að
sá maður, sem þar bír, skuli »ala alla þá menn, er hann
higgur til góðs að alnir sjeu« (ísl. Fornbrs, I 169. bls.).
A Kristbúinu að Keldugnúpi á Síðu skildi »ala alla
þurfamenn og þá er fara skildra erinda« (ísl. Fornbrs. I
201. bls.). Handritin hafa móður í 2. vo., enn það er
bersínilega rangt — það er litilla þakka vert og engra
verðlauna í öðru lífi, þó að maður svelti ekki móður
sina. Hugsunin hlitur hjer að vera hin sama, sem kemur
fram i 1. dæmi, sjerstaklega í 4. erindi, því að þar er
orðalagið mjög líkt og hjer, og þar er móðr líka haft í
merkingunni .vegmóður’.

73: umbun meinlætismanna. — Helgar meyjar sjá
við 25. er. — pína sjálfa sik: sbr. Hugsm. 135. erindi.

72. og 73. erindi higg jeg annars hafi ranglega skift
um sæti í handritunum. 73. er. (um meinlætismenn) er
að efni til náskilt 71. er. (um föstuhald) og á best við
næst á eftir þvi. Hins vegar virðast 72. og 74. er. eiga

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:05:26 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/5/0069.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free