Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
nr. 2
var fjórtán vetra
55
slræti. Það átti Þorkell G. Bergmann kaupmaður, er
siðar verður getið. Hafði hann látið reisa það 1796, þó
naumast til að verzla þar, heldur til vörugeymslu, því
að verzlun sina virðist hann altaf hafa haft í
Berg-mannsbúð (»Fabriqve-hus Nr. 9«) í Aðalstræti (sjá siðar).
Hús þetta eignaðist Lars M. Knudsen 1812 og bjTjaði
þar smáverzlun fyrir eigin reikning jafnframt þvi sem
hann stýrði Petræusar-verzlun. En er hann tveim
ár-um siðar batt verzlunar-bandalag við Petræus, rann
hús þetta inn í Petræusar-eignina sem eitt af
vöru-geymsluhúsum hennar.
Vér erum þá komnir yfir i elztu götu og aðalgötu
bæjarins, sem í gömlum skrifum og skjölum er 5’mist
kölluð »Hovedgaden« eða »AdeIgaden« eða »KIubgaden«
(þvi að alt var hér á dönsku i þann tið). En það er
Aðalstrœti, sem vér nú nefnum svo.
Nyrzt í þessari götu, fyrir vesturenda Hafnarstrætis,
blasa við oss elztu verzlunarhús höfuðslaðarins,
Snn-chenbergs-verzlunaiiiúsin, þar sem nú er verzlunin H.
P. Duus. Þangað hafði kongsverzlunin verið ílutt úr
Hólminum (þ. e. Effersey) árin 1779 og 1780. Fyrir
verzluninni var þá Johan Christjan Sunclienberg og var
hann jafnframt yfirmaður innréttinganna, »en gudfrygtig
Mand«, skrifar sóknarpresturinn (séra Guðmundur
Þoi–grímsson á Lamhastöðum) í sálnaregistri prestakallsins
eitt árið. Hægri hönd Sunchenbergs var Runólfur
Kle-mensson frá Kerlingardal Hallgrimssonar, tengdasonur
Sigurðar í Götuhúsum Erlendssonar, forfaðir
Lækjar-kotsættarinnar, er svo mætti nefna (sjá síðar). Þegar
kongsverzlanirnar voru seldar, keypti Sunchenberg bæði
Reykjavíkur- og Eyrarbakkaverzlunina, og rak þær fyrir
eigin reikning frá ársbyrjun 1788. En með þvi stjórnin
þurfti verzlunarfróðan ráðunaut við hlið sér við
af-hendingu verzlananna, sem hún hafði rekið hér
undan-íarið, kjöri hún Sunchenberg til þess starfa. Settist hann
þvi að i Iíaupmannahöfn og dvaldist þar til dauðadags
<1805 eða 1806), en setti faktora fyrir verzlanir sinar,
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>