- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Fimta Bindi /
276

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

276

DÓMKIRKJAN Á HÓLU.M

SAFN V

2.) Glófar (chirothecæ, manicæ) tiðkuðust ekki fyrri
en í lok 9. aldar, og voru frá öndverðu biskupsfat.
Hefur ýmsum getum verið að þvi leitt, hvað valdið>
hafi þvi, að þeir voru teknir upp, og þykir það
senni-legast, að það hafi verið gjört til þess eins, að auka
prýði skrúðans. Altaf höfðu glófarnir fingur (ekki
»belg-vetlingar«), og voru ýmist saumaðir eða brugðnir; þó
þekkjast aðeins prjónaðir glófar frá 13. öld. Á sömu
öld hækkuðu þeir upp á handlegg og komu á þá víðir
laskar (manicalia, pugnalia), sem gengu niður i mjóan
odd undir handleggnum. Fram á 12. öld voru glófar
úr líni, úr þvi aðallega úr silki. Fram á 13. öld voru
þeir altaf hvitir, úr þvi mislitir. Á 12. og 13. öld var
venjulegast á handarbakinu kringlótt silfurplata mótuð J)
(tasellus, monile), eða þá svipuð mynd saumuð i glófann,
og laskarnir úlsaumaðir. Þórir erkibiskup gaf Páli
bisk-upi »glófa virðulega« 12102). Á Hólafordúknum eru
bisk-uparnir með hvita glófa með háum og viðum löskum
og rauða skildi á handarbökum. Á|Möðruvallatöflunni
og Ólafsmyndinni frá Vatnsfirði eru biskuparnir með
hvita glófa með háum og víðum löskum, og á einni
Möðruvallamyndinni með rós á handarbaki.
Hóladóm-kirkja átti

1374. Glófa þrenna.

1396. — —

1525. — sex pör.

1550. — fimm pör slitin.

Skó og glófa bera biskupar nú á dögum aðeins
með messufötum, á miðöldum þó einnig með kórkápu.

3.) Mítur8) (mitra, infula) er höfuðfat — kóróna —
biskups, og hefur menn allengi greint á um, hvenær
það sé til komið. Jesúmunkurinn Joseph Brauns, sem
er merkasti skrúðafræðingur vorra tima, segir i einu riti

1) Sbr. IJeilagramannasögur I,, bls. 54. 2) B. S. I, 143.

3) Orðin hornahöttur og hornaskálkur i Bragðamágussögu eru

biskupsheiti, en ekki míturs, eins og Falk heldur i Altweslnor-

dische Kleiderkunde, Chria 1918 bls. 93.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:05:26 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/5/0672.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free