Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
2
VÍNLA.NDSFERÐIRNA.R 2
Hjer skal nú gerð nokkur grein fyrir frásögnunum
um þennan síðasta atburð og um þá aðra, er af
hon-um leiddu. Þær voru skráðar fyrir rjettum 6 öldum af
Hauki lögmanni Erlendssyni eða fyrir hann í ritsafn
hans, sem er til enn og kallast Hauksbók. Eitt af
rit-unum í henni er Eiríks saga rauða, föður Leifs, og í
þeirri sögu eru þessar frásagnir greinilegastar og
sann-ast sagðar. Sagan er í þeim hluta Hauksbókar, sem er
handritið nr. 544 í 4 bl. br. í handritasafni Árna
pró-fessors Magnússonar í Kaupmannahöfn. En hún finnst
einnig í öðru skinnhandriti i sama safni, nr. 557 í 4
bl. br. Er það handrit að minnsta kosti heilli öld yngra
og óvíst hver gert liefur. Árni fjekk það frá meistara
Jóni byskupi Vídalín og mun það lengi hafa verið eign
Skálholtskix-kju. Ekki er sagan alveg eins í báðum
hand-ritunum. Af hinu síðar-nefnda má sjá, að Haukur
lög-maður hefur aukið við smáköílum í uppskript sina, en
af henni má aptur sjá, að orðalagi sögunnar, svo sem
það er í Skálholts-bók, hefur verið vikið við svo mjög,
að fæstar setningar eru eins í báðum handritunum.
Yerður það ljóst við samanburð, að sagan er frumlegri
og betur sögð svo sem hún er í bók Hauks, og svo
hefur dr. Finnur prófessor Jónsson litið á.1)
Sagan hefur sennilega verið samin all-löngu áður
en Haukur lögmaður gerði bók sina. Af þvi að
Brand-ur byskup Sæmundarson á Hólum er í lok sögunnar
nefndur hinn fyrri, er svo að sjá, að sagan sje rituð
eptir að Brandur byskup hinn siðari, Jónsson, hafði
setið að stóli, 1263—64. En hjer kann að vera um
sið-ari viðauka að ræða, eins og Finnur Jónsson hefur
bent á. Hann álítur, að sagan hafi verið skráð í fyrstu
um 1200 eða á fyrsta fjórðungi 13. aldar, en aukin og
breytt nokkru siðar, á siðasta fjórðungi aldarinnar.2)
Dr. Gustav prófessor Storm, sem gert hefur beztu út-
1) Sjá inng. að útg. hans að Hauksbók, bls. LXXXIII—IV,
og Litt. hist. II., 646—47.
2) Litt. hist. II., 647-48.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>