- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Sjötta Bindi /
20

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

20

VÍNLA.NDSFERÐIRNA.R 20

landið vafið i rauðum rósum og öðrum ilmandi
blóm-um, en vötn öll full af laxi. í sambandi við þessa
lýs-ing Cartiers skal jeg geta þess, að fjörðurinn er á 48.
stigi norðurbreiddar, þ. e. hjer um bil 1 stigi sunnar en
Parisarborg. — En vetur kemur í Hitafirði ekki síður
en segir i sögunni, að komið hafi yfir þá Þorfinn í
Straumfirði. Og fiskisælt mun vera i Hitafirði enn i dag.

— Pegar þeir Jacques Cartier komu þangað rúmum 5
öldum síðar, stunduðu Indiánar mjög fiskveiðar þar. —
En vinviður vex ekki óræktaður i grend við Hitafjörð
nje annars staðar i Nýju-Brúnsvík, og kemur það einnig
vel heim við söguna, frásagnirnar um frekari landaleit
Porfinns og burtför Þórhalls veiðimanns, sem brátt
skulu athugaðar.

Skoðun Halldórs Hermannssonar, að Hitafjörður
sje Straumfjörður, er þannig að ýmsu leyti sennileg.
Af frásögninni um Straumfjörð i 8. kap. í sögunni og
af frásögninni í 9. kap. um brottbúnað Þórhalls
veiði-manns þykir mjer þó liklegra, að Straumfjörður hafi
ekki verið svo stór sem Hitafjörður er. Aðal-fjörðurinn
er 136 km. að lengd inn frá Miscou-ey og um 25 km.
að br., og inn úr honum gengur annar minni,
Escu-minac-íjörður, sem er um 35 km. langur. — Þar er
einnig ey, Heron-ey, fyrir utan, innarlega i Hitafirði.

— Suður- og norður-úr Hitafirði ganga enn fremur 2
stórir firðir, og enn er hinn fjórði ótalinn, hann er
utar að sunnanverðu, heitir Caraquet-fjörður og er þar
eyin samnefnda fyrir utan. Að Hitafjörður sje
Straum-fjörður verður ekki heldur samrimt við það hvort
tveggja, þá skoðun, að Gaspé-nes sje Kjalarnes, og
frá-sögnina í 12. kap. sögunnar um eptirför Þorfinns eptir
Þórhalli veiðimanni. Yerður vikið að þessu síðar. —
Skiptir mestu, að ekkert i frásögnunum mælir á móti
þvi, að Straumfjörður hafi gengið inn að austanverðu í
Nýju-Brúnsvik.

Þeir Þorfinnur hafa orðið þess fullvísir, að þeir
voru ekki komnir þangað sem Leifur Eiriksson hafði
farið, þeir höfðu ekki fundið vinvið vaxinn, sönnun

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:05:49 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/6/0038.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free