Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
VÍNLA.NDSFERÐIRNA.R 25
næst lýkur frásögninni þannig: »Þeir Karlsefni þóttust
nú sjá, þótt þar væri landskostir góðir, at þar myndi
jafnan ótti ok úfriðr á liggja af þeim er fyri bjuggu.
Síðan bjuggust þeir á brottu ok ætluðu til sins lands
ok sigldu norðr fyri landit. — — — Síðan fundu þeir
Karlsefni nes eitt ok á fjölda dýra. Var nesit at sjá v
sem mykiskán væri, af því at dýrin lágu þar um nætrnar.
Nú koma þeir Karlsefni aptr í Straumfjörð ok váru
þar fyri alls gnóttir, þess er þeir þurftu at hafa«.
Á eptir þessari frásögn setur höfundurinn þessa
at-hugasemd við hana: »Þat er sumra manna sögn, at
þau Bjarni ok Guðríðr hafi þar eptir verit ok .X. tigir
manna með þeim ok hafi eigi farit lengra. En þeir
Karlsefni ok Snorri hafi suðr farit ok .XL. manna með
þeim, ok hafi eigi lengr verit i Hópi en vart tvá
mán-uði ok hafi sama sumar aptr komit«. Þar næst hefst
frásögnin um för Karlsefnis til að leita Þórhalls
veiði-manns. Hefur hún verið athuguð í öðru sambandi hjer
að framan. En í þessu sambandi verður að geta þess
sjerstaklega, að hún bendir til þess, eins og Gustav
Holm hefur tekið fram,1) að þeir Karlsefni hafi ekki
verið heilan vetur og lengur í Hópi, heldur komið aptur,
eins og sumir hafi sagt, eptir tæpra tveggja mánaða
dvöl þar. Þar fyrir hefur alt, sem segir frá í sögunni
um ferð þeirra þangað, getað átt sjer stað, nema að
eins það er snertir vetrarvist þeirra þar.
Er jeg ræddi um Kjalarnes og Straumfjörð hjer að
framan, ljet jeg i Ijós, að Kjalarnes væri Gaspé-nes og
að margt gæti bent til þess, að Straumfjörður væri
Hitafjörður, eins og Halldór Hermannsson hefur haldið
fram. Samkvæmt því verður að líta svo á frásögnina
um för þeirra Karlsefnis úr Straumfirði »suðr fyri landit«
og í Hóp, að þeir hafi farið suður fyrir Nýja-Skotland.
Nú segir i frásögninni um ferð þeirra síðar, er þeir
fóru að leita Þórhalls veiðimanns »norðr fyri
Kjalar-nes« og þá bar þar »fyri vestan fram«, að »þeir ætluðu
1) Meddelelser om Grönland, LIX., 33-34.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>