- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Sjötta Bindi /
17

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

STURLU ÞÓRÐARSONAR

17

en þar, sem segir frá vígi Jóns murts Snorrasonar. í
84. kap. er sagt frá þeim atburðum á þá leið, að engin
sök fellur á Gizur og það verður óviljaverk, er hann
lieldur Jóni undir liögg það, er honum varð að bana.1)
Af 87. kap. má sjá, að Valgarður Guðmundarson, sem
var þjónustumaður Gizurar og sjónarvottur að þessum
atburði, hefur sagt Snorra frá víginu á annan veg og
brugðið Gizuri um að hafa unnið níðingsverk á Jóni,
„ok þótti Gizuri hann ekki bera sér mjök söguna". Var
lagður fundur með Gizuri og Snorra, vegna jiessa
sögu-burðar Valgarðs, og „sór Gizurr fimmtardóms eið, at
liann hefði í engum ráðum verit með Óláfi um víg Jóns,
ok vildi þá réttum skilnaði skilja í alla staði. Lét Snorri
sér þat allt vel skiljask, er Gizurr sagði."2) Vafalaust
liefur Sturla vitað, á liverja leið sögusögn Valgarðs var.
En hann gengur alveg fram hjá henni, þar sem hann
segir frá viginu, drepur einungis á liana síðar, til þess
að gera grein fyrir fundi Gizurar og Snorra og eið
Gizurar, einmitt til þess að firra Gizur ámæli.
Frá-sögnin er öll frá sjónarmiði Gizurar, og liefur Sturla
aJgerlega farið eftir lians sögusögn: „En er hann (þ. e.
Gizur) vissi, at Jón var sárr." Sturla liefur sýnilega
trú-að sakleysi Gizurar og segir frá á þann hátt, að oss er
Ijóst, að Snorri hefur líka talið þetta slys af Gizurar
liendi. En liversu auðvelt hefði ekki verið að geta um
frásögn Valgarðs um það, sem gerzt liafði, á þann liátt,
að lesandinn væri í vafa um, hverju trúa skyldi? Það
mátti gera alveg á ábyrgð Valgarðs og án þess, að vér,
eða samtíðarmenn Sturlu, þegar hann reit söguna,
hefðum getað brugðið honum um hlutdrægni. En þetta
er fjarri Sturlu. Þetta óliapp hefur vitanlega legið sem
skuggi á Gizuri, og orðrómur sá, sern Valgarður er
bor-inn fyrir, hefur ef til vill magnazt eftir þá atburði, sem
síðar urðu, vig Snorra og annara Sturlunga. Hér
kem-ur það berlega fram, að sannleikurinn er Sturlu fyrir
öllu, jafnt þar sem sagt er frá Gizuri sem annars stað-

1) Sturl.2 I, 422—423. — 2) Sturl.3 426.

2

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:05:49 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/6/0103.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free