Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
(52
UM ÍSLENDINGA SÖGU
isröðinni. Frásögninni uin ferðir Þórðar varð ekki slitið,
fyr en Þórður var seztur um kyrrt á Breiðabólstað.
Nið-urskipan sú, sem BMÓ telur réttari, er i raun og veru
flóknari. Þá hefði fyrst átt að greina frá ferð Þórðar
suður á land, þá frá ferð Hjalta á fund biskups og reið
hans norður i land, siðan frá ferð Þórðar á
Rangár-völlu og loks frá þvi, er biskup fór til Breiðabólstaðar
á fund Þórðar. Með þessu móti væri frásögnin um
ferðalag Þórðar slitin i sundur, og það sem sagt er frá
Hjalta og biskupi einnig i tvennu lagi. Frásögnina um
norðurreið Hjalta má ekki vanta í Þórðar sögu, þvi að
liún gerir annars vegar grein fjTÍr sáttaumleitun
bisk-ups og hins vegar skýrir hún tilefnið til liðsafnaðar
Kolbeins og ferðar lians suður Tvidægru. Upphaf 172.
kap. vísar og til þessarar frásagnar og sannar, að hún
er úr Þórðar sögu.
í 185. kap.1) segir frá fundi, sem Ivolbeinn hélt með
bændum i Geldingaholti. Hélt hann þar ræðu um
við-skipti þeirra Þórðar; bauðst hann til að gefa upp allan
Norðlendingafjórðung við Þórð og fara sjálfur utan, en
bændur settu þvert nei fvrir og vildu ekki þjóna Þórði.
Yar Þorsteinn Hjálmsson sendur, ásamt Eyvindi bratt,
með sættarboð til Þórðar. Ivolbeinn reið á leið með
þeim, og mælti einslega við Þorstein, að hann skyldi i
síðustu lög bjóða Þórði þá kosti, sem liann iiafði orðað
á fundinum. Nú er sagt frá ferð Þorsteins; innir hann
upp boð Ivolbeins, og gengur Þórður að þeim kostum.
En er Þorsteinn kom norður, tók Ivolbeinn þvi fjarri,
að hafa gefið lionum nokkuð umboð til þess að bjóða
slíkt. BMÓ telur meiri likur til þess, að upphaf kap., um
mein Kolbeins, fundinn og ræðuna, sé úr Gizurar sögu.
En frásögnin um sendiferð Þorsteins og viðtal hans við
Þórð sé úr Þórðar sögu.-) En frásögnin verður ekki
þannig slitin sundur. Frásögnin um viðtal Ivolbeins og
Þorsteins er alveg vafalaust úr sömu sögu sem
upphaf-ið, ræða Kolbeins og svör bænda: „Kolbeinn kvað Þor-
1) Sturl.3 II, 46—19. — 2) Safn III, 376.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>