- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Sjötta Bindi /
87

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

STL’RLU ÞÓRÐARSONAR

87

höfundur Þórðar sögu eða safnandi hafi liaft hliðsjón
aí’ Hákonar sögu.

Aftur á móti bendir upphaf 211. kap. ótvírætt til
þess, að kap. sé úr Þórðar sögu. Þar segir frá því, að
Svarthöfði Dufgusson færi utan með vöru þá, er
Kol-beinn ungi lagði til utanfarar Þórði, sama sumarið sem
Kolbeinn andaðist (1245). Var Svarthöfði í Noregi sama
veturinn sem Þórður var á Grund (1245—46), en
sum-arið eftir fór Þórður utan, en Svarthöfði koin út í
Vest-mannaeyjum (1246). En sumarið sem Hákon konungur
var vígður, kom Þórður út og tók í Vestmannaeyjum
vín það, er Svarthöfði liafði skilið þar eftir sumarið
áð-ur (1247). Hér eru endurtekningar á því, sem áður hafði
verið sagt frá, til þess að greina ljóslegar frá ferðum
Svartliöfða. Þessi frásögn visar fram fyrir sig, því að i
201. kap. er sagt frá utanför Svarthöfða með vöruna,
en i niðurlagi 198. kap. var gerð grein fyrir þvi, hvers
vegna Kolbeinn ungi lagði þessa vöru fram.1) Rétt á
eftir er i 211. kap. sagt frá þvi, að Þórður reið til Keldna
og fann þar Hálfdan, mág sinn. Voru þau lijón þá
kom-in norðan úr Eyjafirði, og hafði þeim likað litt til
fylgd-armanna Þórðar. Þessi frásögn gerir ráð fyrir, að
les-andanum sé kunnugt, að þau Hálfdan skyldu vera á
Grund og gæta bús Þórðar, meðan liann væri utan, en
frá því var sagt i 208. kap.2) Hér er þvi beinlínis gert
ráð fyrir, að menn þekki frásögn 198., 201. og 208. kap.
um þetta efni, og virðist af þvi mega ráða fyrir vist, að
upphaf 211. kap. sé úr Þórðar sögu. En þvi liefir ekki
verið haldið fram, að framhald frásagnarinnar væri úr
annari heimild en upphaf kap., og mun ástæðulaust að
gera ráð fyrir þvi. En þetta bendir til þess, að 210. og
209. kap. sé einnig úr Þórðar sögu, og hefir þá
safn-andi Sturlungu livergi gripið til Islendinga sögu i
frá-sögninni frá fyrstu útkomu Þórðar til síðustu brottfarar
hans af íslandi.

Þess má geta, að eitt orðatiltæki i 211. kap. virðist
benda til Þórðar sögu: „Því at þeir váru einfaldir i

1) Sturl.3 II, 83 og 85. — 2) Sturl.3 II, 99.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:05:49 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/6/0173.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free