- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Sjötta Bindi /
94

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

94

UM ÍSLENDINGA SÖGU

honum þótt nægja, sem þar er sagt um utanför ÞórSar,
er ÞórSar saga mun hafa greint nokkuS nánar frá. En
sá, er nú ritaði upp söguna, hefur saknaS hér yfirlits
um rikisskipan ÞórSar og hefur bætt úr því, meS því aS
draga saman, þaS sem um þetta var sagt í Þorgils sögu,
tekiS eina grein úr Svínfellinga sögu, en ritaS sumt eftir
þvi, sem hann vissi um þessa atburSi.

Eins og textinn er nú i I, er Svínfellinga saga ein
til frásagnar um atburSi hér á landi frá þvi um
haust-ið 1249 fram á sumar 1252. En i IIp er 5 köflum skotiS
inn i texta Svínfellinga sögu; er þar sagt frá atburSum,
er gerSust 1249—1251. MiSkaflinn af þessum 5 er 213.
kap., sem nú var sýnt, aS er frumritaður af þeim, sem
ritaS liefur handrit þaS, sem ReykjarfjarSarbók (II) er
skrifuS eftir. Hinir 4 lcaflarnir eru og vafalaust ekki úr
Svinfellinga sögu, og hefur BMÓ greint rök fyrir þvi.1)

Fyrsti kaflinn (merktur a í útg. Kálunds) greinir
frá deilum þeirra frænda, Ormssona og Þórarinssona,
gerS ÞórSar kakala á alþingi 1250 og atför Odds aS
Sæ-mundi siSar sama sumar. Næsti kafli (b) segir frá þvi,
er ÞórSur fór aS Sæmundarsonum og rak þá utan. Þá
kemur 213. kap. (c). Á eftir honum er framliald af b,
um Sæmundarsonu, útferð þeirra og drukknun 1251 (d).
Loks er siSasti kaflinn (e) um sættir Þórarinssona og
Ormssona 1251, og er hann beint áframhald af <a.

Þar sem a og e greina frá Ormssonum, mætti ætla,
að þessir kaflar ætti heima í Svínfellinga sögu, og er
þaS ætlun GuSbrands Vigfússonar. En röSin í
liandrit-unum mælir á móti því. EfniS i köflunum bendir og til
þess, því aS Svinfellinga saga greinir annars einungis
frá viSskiptum Ogmundar Helgasonar og Ormssona,
þangaS til yfir lauk meS þeim, og er sýnilegt, aS þessar
deilur eru efni sögunnar og annaS ekki. Annars taka
rök BMÓ af skariS i þessu.

Úr ÞórSar sögu virSast þessir kaflar ekki geta veriS,
þar sem d og e koma ekki viS efni hennar og gerast auk

1) Safn III, 365—369.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:05:49 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/6/0180.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free