Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
(154
UM ÍSLENDINGA SÖGU
synir eru víða tíðindamenn sögunnar, sannar ljóslega, að
hún er rituð eftir 1260, þegar Kálfur Brandsson gekk að
eiga Guðnýju Sturludóttur. í lögmannsstöðu hefur Sturlu
veitzt auðvelt að spyrja tiðinda af mönnum úr öðrum
héruðum.
B. M. Ólsen hefur bent á nokkur atriði, sem sýna, að
sagan er færð i letur alllöngu eftir að atburðirnir gerðust.1)
í 157. kap. segir svo: „Órækja var réttr aðili eftir föður
sinn, eptir þeim lögum, er þá geugu i landi liér.2) Þetta
er áreiðanlega ritað eftir 1271, þegar aðildir vigsaka hurfu
undir konung. Að visu er liugsanlegt, að þessum orðum sé
síðar skotið inn, eins og Finnur Jónsson tekur fram. En
ástæðulaust virðist að gera ráð fyrir þvi, þegar mörg rök
önnur hníga að hinu sama, enda má kenna lögmanninn i
þessum orðum.3) í 131. kap. er getið um Magnús, „er
síðarr varð konungr",4) og i 40. kap. er nefndur Grimur
prestur Hólmsteinsson, sem dó 1298.5) Hvorttveggja gæti
þó verið síðari viðbót. En sagan ber það ljóslega með sér,
að liún er færð i letur eftir að Sturla dvaldi i Noregi. I
46. kap. er sagt frá áverka Eiriks unga við Harald
Sæ-mundarson: „Eirikr komsk út ór bænum (þ. e. Björgyn)
ok varð tekinn langt út frá Mylnudal:"6) I 81. kap. segir, að
Jón murtur hafði herbergi fyrir norðan Kristskirkju, „þar
sem nú er prestagarðr", en hann var grafinn „at
Krists-kirkju, þar sem nú sönghússveggrinn er".7) Þessi orð eru
án alls efa rituð eftir að Sturla var orðinn kunnugur i
Björgyn.
Allt þetta styður þá ályktun, sem dregin var af
niður-lagi sögunnar, að Sturla hafi ritað hana á síðustu
æviár-um sinum. Sennilega hefur hann alís elcki byrjað á henni
fyr en eftir 1271, þegar liann kom út með lögbókina, en
ekki enzt aldur til þess að ljúka við hana. Það mun þvi
óhætt að fullyrða, að Islendinga saga sé rituð
einhvern-tíma á árunum 1271—1281,
1) Safn III, 432—435. — 2) Sturl.3 I, 554. — 3) Narfasynir voru
1)6 líka lögmenn, allir þrír. — 4) Sturl.3 I, 500. — 5) Sturl.3 I, 331. —
6) Sturl.3 I, 351. — 7) Sturl3 I, 422—423.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>