Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
FÓSTBRÆÐRA SAGA
171
Þormóð, lieldur væri seint ortar. Helsta ástæða hans firir
þessu er það, að i einni af þessum vísum er sagt, að
Þorgeirr hafi gengið á skip „með RögnvaMi" og lierjað
með honum.1)
Sagan segir, að þessi Rögnvaldr, sem vísan nefnir,
sje Rögnvaldr Brúsason, og lætur Þorgeir i einni
utan-ferð siruii koma við i Orkneijum og ráðast i lið með
Rögnvaldi. Guðbrandur Vigfússon bendir á það, sem er
alveg rjett, að um þessar mundir — likl. um 1020 —
var Rögnvaldr barn að aldri. Vjer vitum af Ólafs sögu
helga og Orkneyinga sögu, að Rögnvaldr varð eftir hjá
Ólafi helga 1021 i gíslingu firir trúnaði föður sins, Brúsa
jarls, við konung, og er hann þá sagður 10 vetra. Af
þessari mótsögn við rjett timatal áliktar Guðbrandur
Vigfússon, að vísan, sem talar 11111 liernað Þorgeirs
„með Rögnvaldi", hljóti að vera rangfeðruð og ort
löngu siðar, og sama hljóti þá lika að ganga ifir allar
hinar visurnar um Þorgeir, sem sagan eignar Þormóði,
þær sjeu allar seinni tinia tilbúningur. Við þessa
rök-semdaleiðslu Guðbrands Vigfússonar er það að athuga,
að visa sú, sem hjer er um að ræða, segir aðeins, að
Þorgeirr hafi lierjað „með Rögnvaldi", enn greinir als
ekki nánar, livaða Rögnvaldr þetta liafi verið. Það er
sagan, sem segir, að lijer sje átt við Rögnvald Brúsason,
og það er bersínilega misskilningur söguhöfundarins.
Eftir visunni getur þetta verið livaða Rögnvaldr sem
vera vill, ef liann aðeins er uppi sem fulltiða niaður um
1020, enn líklegt er þó, þar sem liann er nefndur
ein-tómur Rögnvaldr, að lijer sje um einhvern nafnkendan
liöfðingja að ræða með Rögnvalds nafni. Og sá maður
1) NjörSr gekk á skæ skorðu
skeljeggr (enn þann teljum
hjaldr) es herja vildi
lljörgaldrs með Rögnvaldi.
Lítt sparði fjör fyrða
freindar mildr at hildi
— drengs var dáð at lengri —
djarfra Hávars arfi.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>