- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Sjötta Bindi /
197

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

HEIÐARVÍGA SAGA

197

ina frá vigi Þorsteins Gislasonar til Heiðarviganna. Af
vigi Þorsteins lilitst vig Halls, sem Hárekssinir drápu.
Af þvi að Hárekssinir drukna rjett á eftir, beiðist Barði
bóta firir Hall bróður sinn hjá ætlingjum þeirra á þrem
þingum. Á þriðja alþingi svarar Gisli Þorgautsson firir
liönd ættingjanna, þikist „nokkuð þverkominn við
mál-ið" og biður smánarboð. Firir það vegur Barði Gisla
á Gullteig, og af þvi hljótast Heiðarvigin. Af
orsaka-sambandinu er Ijóst, að Hárekssinir eru náfrændur
Þorsteins Gíslasonar og Gisli og þeir Þorgautssinir
ná-frændur Hárekssona, með öðrum orðum að Þorsteinn,
Hárekssinir og Þorgautssinir eru allir Gislungar. Þetta
kemur vel lieim, að því er Þorstein snertir, þvi að vjer
vitum bæði af inntaki Jóns og Eyrbyggju, 56. kap., að
hann var Gislason, efalaust sonur þess Gisla, sem
Gísl-ungar eru við kendir og bróðir Þorgauts ingra
Gisla-sonar. Og alt bendir til, að Hárekr, faðir þeirra
Há-rekssona, sem var hniginn að aldri, þegar sagan
gerð-ist (sjá tilvitnun bls. 5614), hafi verið þriðji bróðirinn,
Gislason, Þorgautssonar eldra. Þeir Þorsteinn og
Þor-gautr eru lika rosknir menn, eiga fulltiða sonu.
Ná-skildur Gislungum er auðsjáanlega Þorbjörn
Brúna-son á Veggjum, sem fjell í Heiðarvígum. Þorbjörn
virð-ist vera talinn með Gislungum i „inntaki" Jóns, þvi að
þar segir, að „Narfi" (þ. e. Lyga-Torfi) væri „frændi
Gislunga", sem liann laug sverðið út úr (bls. 5713), enn
annar þeirra er Þorbjörn (768). Lika er Þorbjörn
kall-aður frændi Þorgauts (8410). Enn vjer vitum ekki glögt,
hvernig þeirri frændsemi var varið. í föðurætt hefur
Þorbjörn ekki verið frá Gisla, sem Gíslungar eru við
kendir, þvi að Landnáma1) segir, að Brúni, faðir hans,
liafi verið sonur Geirmundar gands landnámsmans. Enn
vel má vera, að móðir Þorbjarnar liafi verið dóttir
Gisla, sistir þeirra Þorsteins, Þorgauts og Háreks
Gísla-sona. Hann væri þá annar maður frá landnámsmanni
i föðurætt, enn þriðji i móðurætt, sem vel getur staðist.

1) Landn., Stb. k. 52, Hb. k. 40.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:05:49 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/6/0471.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free