- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Sjötta Bindi /
200

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

90 UM ÍSLEN’DINGASÖGUR 200

Sonur hans var Þjóðólfr goði á Hofi á Skagaströnd, sem
að öllum likindum hefur verið faðir þeirra
höfðingj-anna Eilifs og Höskulds á Höskuldsstöðum, sem
Heið-arviga saga getur, og liafa þeir verið náfrændur Barða.
Er þvi eðlilegt, að Halldórr stirimaðr, fóstbróðir Barða,
fengi hann til að koma sjer i sátt við þá Höskuld og Eilif,
enn eklci getur sagan, eins og hún er nú, um þennan
skildleika. Lika var Eilifr örn afi Þórlaugar, konu
Guð-mundar rika á Möðruvöllum, föður Eyjólfs
(Land-náma). Barði hefur þvi verið mjög nákominn
Möðru-vellingum, enda telcur Barði Guðmund til gerðar eftir
Heiðarvigin (10120), og þegar Barði hritur skip sitt
við Siglunes, bjóða þeir feðgar Eyjólfr og Guðmundr
Barða og félögum lians til veturvistar, enn hvergi er þess
getið í því, sem nú er til af Heiðarviga sögu, að Barði
liafi verið i ætt við Möðruvellinga. Ifirleitt má segja, að
það, sem Heiðarvíga saga nú segir um ætt Barða, sje svo
óákveðið, að ekki verður neitt af þvi ráðið um afstöðu
Heiðarvíga sögu við Landnámu.

Bæði Heiðarviga saga (1001G) og Landnáma1) geta
þess, að Þorgils Arason á Reikjahólum átti Grimu
Hall-kelsdóttur, sistur Illuga svarta. Enn Heiðarviga saga
ein getur þess, að Þorgils hafi síðar átt Helgu
Einars-dóttur þveræings, ekkju Ljóts Siðu-Hallssonar. Um
þessar mægðir Reiknesinga og Þveræinga veit engin
önnur saga enn Heiðarvíga saga, og bendir það helst
til, að Iieiðarviga saga og Landnáma sjeu hvor annari
óháðar.

Landnáma getur um og ættfærir tvo menn, sem hafi
fallið i Heiðarvigi. Annar þeirra er Þorbjörn Brúnason2)
og kemur það alveg heim við Heiðarviga sögu, sem segir
greinilega frá Þorbirni og falli hans „i Heiðarvigi". Enn
sögunum ber ekki saman um bústað Þorbjarnar; segir
Landnáma, að liann liafi búið að Steinum, enn
Heiðar-viga saga á Yeggjum (Siðumúla). Þetta þarf ekki að

1) Útg. 1843, bls. 67 og 86. — 2) Landn. 1843, 70. bls, Stb. 52. k,
Hb. 40. k.

*

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:05:49 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/6/0474.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free