Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
90
UM ÍSLEN’DINGASÖGUR 202
í einum kafla, þar sem efnið ekki er liið sama, virðist
höfundur Eyrbyggju hafa iagað frásögn sina eftir
Heiða-viga sögu. Sagan um flutninginn á líki Þórólfs bægifóts
(einkum i 34. kap. Evrbyggju) er svo nauðalik sögn
Iieiðaviga sögu um flutninginn á liki Styrs,1) að það
verður varla skirt öðruvisi enn að Eyrbyggja hafi sniðið
sina frásögn eftir Heiðarvíga sögu.
Önnur saga, sem hefur notað Heiðaviga sögu, er
Grettis saga. Hún talar svo kunnuglega um Heiðarvigin
og þó sérstaklega um undirbúninginn undir þau, ráð þau,
sem Þórarinn spaki lagði Barða, að það er ljóst, að
höf-undur hennar hefur liaft firir sjer Heiðarvíga sögu.
Grettis saga segir, að Grettir liafi boðið Barða filgd sina i
Heiðarvigin, og að Barði hafi feginn viljað taka þvi boði,
enn Þórarinn ræður frá að hafa ólánsmanninn i förinni,
svo að Barði lætur ekki Gretti vita, þegar liann fer. Út af
þessu hafi svo Grettir reiðst Barða og gert honum
firir-sát, þegar hann kom að sunnan frá Heiðarvígunum, enn
ekki þorað að ráðast á liann sakir liðsmunar. Alt þetta er
bersinilega skáldskapur i Grettis sögu, enn það sinir, að
höfundurinn hefur þekt vel efnið i Heiðarviga sögu.
Laxdæla saga getur um Víga-Barða og föður lians
Guðmund Sölmundarson og sistkini hans, Hall, Stein og
Steingrim, Ólöfu og Guðrúnu. Alt þetta kemur heim við
Heiðarvíga sögu og getur verið tekið þaðan.2) Þar segir
og, að Þuríðr, kona Guðmundar, enn móðir Barða, væri
dóttir þeirra lijóna Ólafs pá og Þorgerðar Egilsdóttur, og
hefur það eflaust lika staðið i Heiðarviga sögu, meðan
hún var heil, enn nú er Þuríðr, móðir Barða, hvergi
ætt-færð i Heiðarviga sögu. Merkilegt er það, hve likt þær
mæðgurnar koma fram gagnvart sonum sinum, Þorgerðr
i Laxdælu og Þuriðr i Heiðarviga sögu. Þorgerðr
eggjar sonu sína kröftuglega að liefna Kjartans bróður
þeirra á Bolla og ræðst sjálf með þeim i atförina að
Bolla. Þuriðr eggjar sonu sína af miklum móði að hefna
1) Heið. 28. — 2) Guðrún, sistir Barða, er nefnd í Heið., bls.
7226, sein móðir Guðbrandssona, „sistursona" Barða.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>