- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Sjötta Bindi /
296

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

296

UM ÍSLENDINGASÖGUR

linis tilbúningur Grettis sögu. Eftir HafursfjarSarorustu
er i Grettis sögu ekki annaS sagt frá Bálka og HallvarSi
súganda enn aS þeir hafi fariS út til íslands og numiS
þar land (k. 5, 1), og er þaS, sem segir um landnám
þeirra, beint skrifaS út úr Landnámu. Eftir þaS eru þeir
úr sögunni, og sjest á því, aS Grettis saga tekur þá aS
eins meS, af þvi aS Landnáma segir um þá eins og
Önundr, aS þeir liafi barist móti Haraldi hárfagra i
Hafurs-firSi. Enn nú heldur sagan áfram aS segja frá Önundi
og hinum nija fjelaga hans Þrándi mjöksiglanda. Þeir
leita vestur um liaf og hitta þar i SuSureijum þá
frænd-ur Ófeig gretti og ÞormóS skafta bróSurson lians og
binda viS þá mægSir. Gengur Önundr aS eiga Æsu
dóttur Ófeigs, enn Þrándr dóttur ÞormóSs ónefnda.
BáSir þessir menn Ófeigr og ÞormóSr eru teknir beint
út úr Landnámu, ættfærSir eins og þar, og landnám
þeirra greind eins og þar.1) Landnáma veit ekki neitt um
þessar mægSir Önundar viS Ófeig gretti, enn hún telur
3 dætur Ófeigs meS þessum orSum: „Aldis, móSir
Yalla-Brands, ok Ásvör, móSir Helga hins svarta; Æsa hét ein."
Nú er þaS merkilegt, aS Grettis saga lætur Önund ganga
aS eiga Æsu, þá eina af dætrunum, sem Landnáma veit
engin deili á. Þetta bendir sterklega til þess, aS þaS sje
ekki annaS en tilbúningur Grettlu, aS Önundr hafi átt
Æsu. Enn hvaS hefur hjer vakaS firir lionum?
Land-náma telur Gretti firstan af sonum Önundar.2) Þennan
son kallar Grettis saga (k. 11, 1 og 12, 13—18) Ófeig
gretti, liann er meS öSrum orSum heitinn eftir afa sinum
eftir Grettis sögu. Allar likur eru til, aS höfundur hafi
viljaS skíra nafn sögulcappans. í Landnámu finnur hann,
aS afabróSir Grettis sterka hjet Grettir eins og hann. Enn
honum nægir þetta ekki, hann vill rekja nafniS lengra
upp, og nú áliktar liann, að móSurfaSir Grettis eldra
hafi heitiS Grettir og sje sami maSur og Ófeigr grettir i
Landnámu, sá eini maSur í Landnámu, sem ber þetta

1) Sbr. Grett., k. 3, 4—5 og 5, 3—4, við Landn., útg. 1843, 283. og
308,—310. bls., Stb., k. 344 og 379, Hb., k. 303 og 334. — 2) Útg. 1843,
157. bls.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:05:49 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/6/0570.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free