Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
VÍGA-GLÚMS SAGA
351
vegni er Grimr á Kálfskinni. Einar Eyjólfsson sækir
vígsökina, enn Glúmr og Már son hans verja, af þvi að
Már var stjúpfaðir Þorvalds. Eftir þvi sem Melabók segir,
virðist Glúmr liafa farið til vorþings (Vaðlaþings) og
haldið þar vörn uppi, og út af því verður bardaginn á
þvi þingi og lirakningar Glúms, ekki á haustþinginu eins
og i Glúmu. Og imislegt fleira ber sögunuin á milli, sem
jeg hirði ekki að telja. Það er auðsjeð, að lijer er eitthvað
blandað málum i annari livorri sögunni, og liirði jeg ekki
um að rannsaka, hvor rjettara hefur firir sjer. Eggert
heitinn Brim prestur liefur ritað um það dágóða grein
i Tímarit Bókmf. 3. bd., 1882. í rauninni má standa
nokkurn veginn á sama, hvor sögnin er réttari. Enn liinn
mikli munur, sem á þeim er, sínir, að önnurhvor sögnin
eða báðar liafa afbakast mjög í munnmælum, og er
þetta merkilegt, af þvi að það er eitt af mörgu, sem
sannar, að íslensk munnmæli eru als ekki óskeikul. Það
er auðsjeð, að hjer er um tvær sjálfstæðar og hvor annari
óháðar munnlegar sagnir að ræða. Spurning sú, sem
lijer varðar mestu, er: hvaðan hefur Melabók sina
mis-munandi frásögn? Hefur þessi frásögn staðið i
Land-námu frá upphafi og þaðan komist inn i Melabók? í
sjálfu sjer er það mjög óliklegt, að hin upphaflega
Land-náma hafi sagt svo greinilega frá þessum atburði, sem
gerist löngu eftir landnámstið og ekki kemur neitt við
sögu landnáma. Að þessi kafli sje siðari innskotsgrein
i Melabók, sjest og á þvi, að hann stendur í Melabók
einni (af Landnámu-handritunum), enn hvorki i
Sturlu-bók nje Hauksbók. Enn livaðan liefur Melabók þessa
sögu, sem að visu greinir mjög á við Glúmu um einstök
atriði og nöfn sumra persónanna, enn kemur þó svo vel
heim við hana í aðalefninu? Jeg tel engan vafa á, að
Melabók liafi haft þetta úr sögu, sem var líks efnis og
Glúma, hvort sem það nú hefur verið sjerstök gerð af
Glúmu, frábrugðin að imsu þeirri, sem geimst hefur i
Möðruvallabók, eða önnur saga, sem að visu hefur sagt
frá Glúmi, enn ekki gert hann að höfuðpersónu
sög-unnar, heldur dregið nieir fram aðra menn, sem i höggi
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>