- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Sjötta Bindi /
412

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Þátturinn af ög’inundi ílytt
og Gunnari helining

hefur geimst í heild sinni i sambandi við Ólafs sögu
Tryggvasonar hina löngu, sem prentuð er i Fornmanna
sögum og i Flateijarbók.1) Enn jafnframt hefur hann
staðið i Víga-Glúms sögu Vatnshirnu-handritsins (nú
445 C, 4to, áður 564, 4to), og er brot af þættinum —
upp-haf lians — á hinu firsta af þeim 3 skinnblöðum
Vatns-hirnu, sem geimst hafa af Glúmu. Þetta skinnblað hefur
Guðmundur Þorláksson gefið út sem viðauka aftan við

Glúmu-útgáfu sina.2)–- —

Það er ljóst, að þessi þáttur hlítur frá upphafi að hafa
verið sjálfstæð saga, þar sem hann hefur geimst sem
partur af tveimur ólikum sögum. Þetta verður varla skirt
öðruvisi enn svo, að bæði Ólafssöguhöfundur og
Glúmu-(eða rjettara sagt Vatnshirnu-) höfundur hafi hvor um
sig liaft firir sjer þáttinn sem sjálfstætt rit og tekið upp
efni hans. Ef vjer berum saman Ólafssögugerðina við
það brot, sem geimst hefur i Vatnshirnu, þá sjest fljótt,
að báðar þessar gerðir eru svo likar, að hjer hlitur að
liggja til grundvallar sameiginlegt frumrit. Hins vegar
eru nokkrar missagnir. Eftir Ólafssögugerðinni bir
Glúmr að Þverbrekku, þegar sagan gerist, og er hniginn
á efra aldur. Enn Vatnsliirna lætur þáttinn koma inn
næst á eftir 15. k., sem er niðurlag frásagnarinnar um
Ingólf og vig Hlöðu-Iválfs. Þá bir Glúmr enn að Þverá
og er á besta skeiði, og á einum stað í þættinum er beint
nefnd Þverá sem bústaður Glúms. í sambandi við þetta
er það athugavert, að Vatnshirnugerðin segir, að Hrafn,

1) Hann er prentaður í Fms. II, 62.-78. bls. og Flat. I, 332,—
339. bls. — 2) ísl. forns. I. 96.-99. bls.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:05:49 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/6/0686.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free