- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Sjötta Bindi /
415

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Reykdæla saga eða Vémundar sag’a
og" Víga-Skútu.

Handrit. Merkast af handritum þeim, sem geimt
liafa þessa sögu, er skinnbókarbrotið i AM 561, 4to, sem
er ritað um 1400. Alt er þetta handrit nú 41 blöð, og liafa
verið á þvi 3 sögur að minsta kosti: Reykdæla saga,
Gull-Þóris saga og Ljósvetninga saga. Það, sem til er af
Reykdæla sögu, er nú 16 blöð, sem birja í miðju kafi
i 13. k. sögunnar; vantar þvi i liandritið 12 firstu k. af
Vémundar sögu og lijer um bil % af 13. k. Auk þess
vantar 1 blað aftan til i söguna (Skútu sögu), og 2
blaðsíður eru svo máðar, að þær verða ekki lesnar. Auk
þess eru til allmörg pappírshandrit, sem virðast öll vera
runnin frá þessari skinnbók, meðan liún var heillegri
enn nú, því að með þeim má filla allar þær eiður, sem
i söguna eru, nema þá, sem stafar frá máðri og
ólæsi-legri blaðsiðu aftast i Skútu sögu, rjett á undan
niður-laginu (i 30. k.). Þessi eiða, sem ekki verður filt, er svo
stutt, að nokkurn veginn má ráða i efni þess,
semþarhef-ur staðið, af þvi sem fer á undan og eftir, auk þess hefur
Guðbrandi Vigfússini tekist að lesa orð og orð á stangli,
og er það til stuðnings, þegar spáð er i eiðuna,1) svo að
það má lieita, að vjer höfum söguna heila. Af
pappirs-handritunum er einna merkast AM 158 fol. —
Útskála-bók — runnin frá sr. Þorsteini Bjarnarsini á Útskálum,
rituð um 1650, og hef jeg minst á þetta handrit við
Valla-Ljóts sögu. Ennfremur AM 496, 4to, sem Þorlákur biskup
hefur átt, og AM 161 fol., rituð af sr. Jóni Erlendssini
i Villingaholti. Tvö pappirshandrit af sögunni, fremur
ung, enn ekki ómerkileg, eru i handritasafni Bókmenta-

1) N. Fjel. XXI, 121,—2. bls.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:05:49 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/6/0689.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free