Full resolution (JPEG)
- On this page / på denna sida
- Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread.
/ Denna sida har aldrig korrekturlästs.
19
HELGI
Hvað var það ?
EINAR
Eg lá fyrir tóu um nótt að vetrarlagi.
Eg lá í hraunkarlinum, þú hefir séð hann.
Indriði kemur út.
HELGI
Nei.
EINAR
Hann er á hæð við mann, holur og
opinn að ofan svo að það er hægt að skríða niður
í hann — þú færð að sjá hann. — Þegar
eg var búinn að liggja dálitla stund,
ætlaði eg að fá mér upp í mig, en þá tókst
svo illa til, að eg hafði gleymt dósunum
mínum heima. Eg hélt, að eg kæmist af
yfir nóttina, en það var kuldi og eg varð
ekkert var við tóuna, og það veit
hamingjan, að þegar komið var fram undir
ljósaskiftin þá hefði eg selt sálina fyrir eina
góða tölu af tóbaki.
Ljót kemur inn, heldur á blómvendi, fer inn í
bæinn.
2'
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Project Runeberg, Tue Jun 2 10:50:53 2026
(www-data)
(download)
<< Previous
Next >>
https://runeberg.org/sjhrauni/0023.html