Full resolution (JPEG)
- On this page / på denna sida
- Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread.
/ Denna sida har aldrig korrekturlästs.
25
LJÓT
Komdu sæll, þú vildir finna mig.
SÖLVI
Þú verður ekki reið við mig —- eg hélt,
að þú kynnir að hafa gaman af því tekur
andarham upp úr töskunni. ÉEg skaut hana á
ánni hérna um daginn, og mér þótti hún
svo falleg, að eg tók ham af henni og
þurkaði hann. Heldurðu,að þú getir
notað hann til nokkurs, t.d. í reiðhúfu.
LJÓT
Hann er fallegur.
SÖLVI
Þegar þú heldur vængnum svona, þá er
spegillinn blár, en þegar þú heldur honum
svona, þá er hann grænn, það er eftir því
hvernig ljósið fellur á hann.
LJÓT
Eg veit ekki, hvort eg þori að taka við
honum, eg þekki þig svo lítið.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Project Runeberg, Tue Jun 2 10:50:53 2026
(www-data)
(download)
<< Previous
Next >>
https://runeberg.org/sjhrauni/0029.html