Full resolution (JPEG)
- On this page / på denna sida
- Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread.
/ Denna sida har aldrig korrekturlästs.
35
LJÓT
Eg er hrædd um, að eg vilji ekki mína
eigin gæfu.
SVEINUNGI
Þú ættir að hugsa áður en þú talar.
Þú ímyndar þér, að annar eins biðill
og Hálfdan komi til þín á hverjum degi.
En það er ekki heldur alvara þín, þú vilt,
að hann tali við þig sjálfur.
LJÓT
Eg er svo ung enn þá, pabbi.
SVEINUNGI
Þú ert nítján ára, þær gifta sig
margar þegar þær eru sautján, og þú ert svo
vel að þér, að þú getur staðið fyrir búi,
það er óhætt með það, eg þarf ekki að
skammast mín fyrir þig þess vegna —- þar
að auki hefirðu mömmu þína, því að það
er auðvitað, að þið verðið hjer, þið haldið
brúðkaupið í haust og næsta vor takið þið
við jörðinni.
3.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Project Runeberg, Tue Jun 2 10:50:53 2026
(www-data)
(download)
<< Previous
Next >>
https://runeberg.org/sjhrauni/0039.html