Full resolution (JPEG)
- On this page / på denna sida
- Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread.
/ Denna sida har aldrig korrekturlästs.
86
gjá. — Eg hrapaði — og eg hrapaði. —
Eg lá niðri á gjáarbotninum, og gat hvorki
hreyft legg né lið — og dauðinn kom og
saug lífið út úr augunum á mér, hann hélt
því á milli handanna eins og svolitlum
loga. Þá stóð kona við hliðina á mér,
hún var í mosaklæðum — hún bað
dauðann að lífga mig. — En fyrir lífgjöfina
verður hún að sitja niðri í gjánni, dag og
nótt, hreyfingarlaus — í sama vetfangi sem
hún stendur á fætur og askan hrynur úr
höndunum á henni, þá dey eg. — Hún var
lík þér. Það er þú. Veiztu, að líf mitt
er í þínum höndum.
Þau standa bæði upp.
LJÓT
Eg held, að það sé réttast að við förum.
Það er ekki gott að vita, hvenær Einar
kemur, hann gleymir sér þegar hann er á
veiðum.
SÖLVI
Eg elska þig, Ljót. Þú hefir aldrei
horfið úr huga mínum síðan í fyrsta sinni að
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Project Runeberg, Tue Jun 2 10:50:53 2026
(www-data)
(download)
<< Previous
Next >>
https://runeberg.org/sjhrauni/0090.html