Full resolution (JPEG)
- On this page / på denna sida
- Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread.
/ Denna sida har aldrig korrekturlästs.
107
JÓRUNN
Hvað segirðu, Ljót?
SVEINUNGI
Þú hefir ekki tekið pabba þinn með í
reikninginn. Þú ert ekki einfær um að
svíkja loforð þitt. Heldurðu, að þú farir
með mig eins og fífl! við Sölva Pú ert ekki
orðinn tengdasonur minn, þó að þú hafir
masað eitthvað við dóttur mína.
SÖLVI
Eg veit, að þú hefir valið þér annan
tengdason — en ef þú samþykkir, að eg
fái Ljót, þá beygir þú þig hvorki fyrir mér
né dóttur þinni, þú beygir þig fyrir þeirri
tilfinningu, sem sterkust er í lífinu.
SVEINUNGI
Þú ert hreykinn af því að hafa tælt
unga stúlku til þess að svíkja loforð sitt
— þú þykist vera mikilmenni! Og þú
hefir sætt lagi þegar hún var utan við sig af
hræðslu — þú hefir komið eins og þjófur
á nóttu.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Project Runeberg, Tue Jun 2 10:50:53 2026
(www-data)
(download)
<< Previous
Next >>
https://runeberg.org/sjhrauni/0111.html