Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
ir á inóts við suðnrodda Afríku, og viku síðar,
seinni hluta hins 24., erum vjer komnir að
suður-heimskautinu. J>á höldum vjer aptur norður á
bóginn hinum megin hnattarins. Yfir Kyrrahafið
erum vjer í 28 daga. Hinn 21. dag febrúarmánaðar
erum vjer komnir að norðurheimskautinu, hinum
enda jarðarmöndulsins. |>á eigum vjer skammt
eptir, og komum til Björgvinar um hádegi 26. d. s.
m., og höfum þá verið 56 daga og 6 klukkustundir að
fara hringinn í kringum jörðina. Vjer hvílum oss
nú í einn eða tvo daga. Klukkan 6 að morgni hins
1. d. marzm. höldum vjer íit í geiminn, og förum
náttfari og dagfari. fannig höldum vjer hiklaust
áfram með jöfnum hraða, viku eptir viku, mánuð
eptir mánuð, og náum loks takmarkinu kl. 2 að
morgni hins 25. d. ágústm. árið 1881. Ætli flestir
hinna óþolimnóðu ferðamanna á vorum dögum yrðu
eigi orðnir þreyttir á vegalengdinni ?
Eins og þjer vitið, hefir enginn vegur verið
lagð-ur enn þá til tunglsins, og því getum vjer hvorki
komizt þangað á hestum postulanna, nje gufunnar.
Vjer verðum því að leita annara úrræða til þess að
komast þangað, og liggur þá beint við að fá sjer
loptfar. Værum vjer nú heldur heppnir, svo að
vjer gætum sífellt siglt fyrir snörpum byr, sem fer
15 fet á sekúndunni, mundum vjer verða 5 missiri á
ferðinni. Satt að segja hygg jeg að enginn af hinum
heiðruðu tilheyrendum mínum mundi vilja fara
slíka för; því þótt eigi sje litið á allar þær hættar,
sem vjer gætum komizt í áður en vjer næðum
takmarkinu, mundi slík för án efa verðaheldur
leiðin-leg, er til lengdar ljeti. f>jer verðið að gæta þess,
að á hinni löngu leið mundi harla fátt vera umhverfis
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>