- Project Runeberg -  Förin til Tunglsins /
17

(1884) [MARC] Author: Sophus Tromholt
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

má gjarnan vera á stærð við mannshöfuð — stígur
hann svo hátt, að vjer eygjum hann ekki, og kemur
ekki niður fyr en löngu seinna. Hjer ér
mestihægð-arleikur að ganga upp brattar brekkur, og fara upp
á há fjöll; það er verst að vjer erum svo stuttfættir,
að vjer getum ekki þanið oss eins og ella. Oss
veitir mjög ljett að stökkva yfir 25 feta breiðar gjár.
f>egar vjer hlaupum, komum vjer varla við jörðina,
og væri tunglið ekki eins fjöllótt, eins og það er,
gætum vjer hlaupið yfir það endanna milli á fám
dögum, og það þeim dögum, sem vjer höfum vanizt
á jörðinni; en dagurinn á tunglinu er miklu lengri;
hann stendur yfir fullar 2 vikur og 16 tíma, það er með
öðrum orðum 29 sinnum lengur en 12 tíma dagarnir á
jörðinni, og að því skapi er nóttin löng.
Jarðar-hnötturinn snýst um ás sinn á 24 tímum, og snýr
á þeim tíma öllum hliðum sínum að sólinni, og
við það fram kemur skipting dags og nætur, en til
slíkrar umferðar þarf tunglið 29 daga, og er þvf
sólarhringurinn á tunglinu jafnlangur einsog
mánuð-ur hjer hjá oss.

Vjer reikum nú um á yfirborði tunglsins til
þess að kynna oss það ofurlítið. f>egar vjer virðum
fyrir oss landslagið, verðum vjer að viðurkenna, að
það, sem vjer höfum skilið við landslag á jörðinni, á
hjer alls eigi við. Landslagið á jörðinni hefir mjög
mismunaudi áhrif á hugi manna, það vekur ýmist í
hugum vorum alvarlegar eða unaðslegar, háleitar
eða hræðilegar myndir, ýmist sökum fjölbreytni í
dýra- og jurtaHfinu, eða sökum þess, hversu fjöll og
dalir, skógar og engjar skiptast á. Minnumst vjer
bjarmans á hinum himingnæfandi jökultindum, eða

2

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Fri Oct 18 17:50:13 2024 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/tunglsins/0021.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free