- Project Runeberg -  Förin til Tunglsins /
29

(1884) [MARC] Author: Sophus Tromholt
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

snýst hún; Kyrrahafið sjest. f>á kemur Asía og
hrikafjöll hennar; skammt frá henni er stór ey, það
er Astrallandið. Kínland, Indland og Eússland
koma í Ijós, og þar sjáum vjer loks Afríku og hinar
stóru eyðimerkur hennar, sem glampar á eins og
hvíta bletti.

|>essa stórkostlegu sjón sjáum vjer að eins af
þeirri hlið tunglsins, sem veit að jörðinni. Búi
nokkrir á hinni hlið þess, þá er þeim varnað
þessar-ar sjónar, því þeir snúa ávallt frá jörðinni og fá
al-drei að líta hana, og hafa þess vegna ef til vill enga
hugmynd um hina fögru sjón, sem hinir heppnu
ná-grannar þeirra hinumegin geta skemmt sjer við á
hverri stundu. Hver veit nema þeir fari við og við
hópum saman yfir á þessa hliðina, til þess að dást
að og dýrka hið stóra og undrunarsamlega himinljós,
sem þeir sjá aldrei heiman að frá sjer.

Stjörnurnar sjáum vjer í sömu röð á
næturhimnin-um og vjer sjáum þær á jörðinni. Karlsvagninn og
Sjöstjörnurnar eruá sínum stað; en hins vegar tindra
stjörnurnar hjer ekki nje bregða litum eins og þær
sýnast gjöra á jörðinni sökum gufuhvolfsins. ]pær
ljóma hjer með fullum ljóma öldungis þangað til þær
snerta sjóndeildar-bauginn. Hvorki hið daufa ljós
vetrarbrautarinnar nje hinar minnstu stjörnur hverfa
fyrir jarðskininu. Eitt vantar þó ánátthiminn
tungls-ins, og það eru stjörnuhröpin; þau sjást þar aldrei,
og aldrei rýfur neinn hraðfara vígahnöttur
himin-kyrðina. Umhverfis oss er glóbjart af jarðljósinu,
13 sinnum bjartara en þegar tungl skín í fyllingu
á jörðinni. Jörðin er beint yfir höfðum vorum, og
því bér hvergi skugga á, vjer sjáum rætur
hring-fjallsins, gígbotninn, jafnskírt hið fjarlæga og ná-

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Fri Oct 18 17:50:13 2024 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/tunglsins/0033.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free