- Project Runeberg -  Eimreiðin / II. Ár, 1896 /
15

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

15

teknar fram í »Konunglegri auglýsing til Islendinga« 2. nov. 1885.
Par segir svo:

»Ef æðsta stjóm Islands yrði, eins og ákveðið er i hinu samþykkta
fruni-varpi, fengin í hendur ábvrgðarfausum landstjóra, skipuðum af Oss óg með
að-setur í landinu sjálfu, er skyldi hafa vald til að ráða þeim málum til lykta í
umboði Voru, er konunglegs samþvkkis þurfa, — með þeini einum
undantekn-ingum, að hann gæti eigi staðfest breytingar á stjórnarskipunarlögunum, eigi
náðað menn nje veitt almenna uppgjöf á sökum — og sem skyldi taka sjer
ráð-gjafa og låta þá framkvæma vald sitt og hafa ábyrgð á stjórnarstörfunura fvrir
alþingi, þá myndi Island með þessu móti, eins og Vjer þegar áður höfuni tekið
fram í auglýsing Vorri til alþingis 23. mai 1873, er um líka uppástungu frá
al-þingi var a0 ræða, í raun og veru verða leyst i’tr ölhi sambandi við rikib, þar
sem æðsta stjórn þess þá yrði falin á hendur stjórnarvaldi í landinu sjálfu, er
óhdö vœri baot hinni annari stjórn Vorri og eins ritísrdbi Vorii. En slíkt
fyrir-komulag mundi fara i bdga við hina gildandi stjórnarskiþun ríkisins, og gœti eigi
samrýmzt stöðu islands að lögum sem oaðskiljanlegs hluta Danaveldis, er gjörir það
að verkum, að æðsta stjórn hinna íslenzku mála sem og allra mála ríkisins til
samans verður að vera i höfuðstað Vorum, eins og líka er gengið út frá í
lög-unum 2. jan. 1871, 6. gr.«

Þetta er allt og sumt sem stjórnin hefur fram að færa sem
ástæður fyrir neitun sinni. En þessar ástæður telja Islendingar
nokkurn veginn einskisverðar, og skoða þær fremnr sem
yfirskyns-vífilengjur en sem sannar ástæður. Stjórnin virðist allt af gleyma
því, að hjer er einungis að ræða um skipulag hinna sjerstöku mála
Islands.

Látum okkur nú skoða þessar ástæður, sem skipta virðist
mega í fernt.

1. Þetta skipulag á að leiða til þess, að ísland verði »leyst úr
öllu sambandi við ríkið«. Hvernig geta menn nú sagt slíkt, þegar
öll hin almennu málefni landsins eptir sem áður liggja undir hið
almenna löggjafarvald ríkisins, ríkisþingið og stjórnina i
samein-ingu, og þegar engar breytingar verða gerðar á stjórnarskrá
Islands, nema þær nái staðfesting konungsins sjálfs? Er þetta tvennt
ekki nægileg trygging fyrir þvi, að Island geti ekki orðið leyst úr
sambandi við ríkið? Það skyldu menn halda.

2. Þetta skipulag á enn fremur að »fara í bága við hina
gildandi stjórnarskipun ríkisins«. Hjer getur ekki verið átt við annað
en gnindvallarlögin; en þar sem grundvallarlögin, eins og jeg hefi
þegar tekið fram, gilda ekki á Islandi, þá getur skipun hinna
sjerstöku mála Islands, hvernig sem henni væri fyrir komið, aldrei
komið i bága við grundvallarlögin, því hin sjerstöku mai Islands
og grundvallarlögin eiga ekki agnar ögn saman að sælda.

3. Þá á þetta skipulag »eigi aö geta savirýmzt stöðic Islands
að lögum. sem óaöskiljanlegs hluta Danaveldis«. Stjórnin gleymir

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:07 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1896/0021.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free