- Project Runeberg -  Eimreiðin / II. Ár, 1896 /
66

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

66

Þrjár helgisögur.

(Eptir Viggo Stuckenberg.)

»Drottinn!« sagði sankti Pjetur einhverju sinni við Guð á
himnum, »mörgu höfum við kippt í lag hjá mönnunum, — en
fjárreiður þeirra, þær eru í eilífu óstandi.« ,

»Já,« svaraði Drottinn og yppti öxlum, »fjárreiður þeirra, þær
eru handaverk Djöfulsins.«

Sanktí Pjetur hleypti brúnum, strauk sig um hökuna og horfði
út í bláinn.

»Já, það er sjálfsagt ekki til neins að eiga neitt við það,« sagði
hann eptir langa umhugsun.

»Hugsast þjer nokkurt úrræði?« spurði Drottinn.

Pjetur fór aptur að strjúka hökuna.

»En allur sá sægur, sem fyrirfer sjer fyrir þær sakir?« spurði
hann loks í þcini meðaumkvunartón, sem einkennir margreynda
mannvini.

»Þeir,« svaraði Drottinn og brosti um leið eins og stórt barn,
»þeir skulu sitja hjá mjer innan um hina mestu sakleysingja, þvi
þeir eru í sannleika orðnir eins og börnl« —

Sankti Pjetur gekk í sólskini himnanna og var að tala við
Drottin.

»Það er nýdáin unglingsstúlka,« sagði hann.

»Kom hún hingað?« spurði Drottinn.

»Já,— jeg áræddi það — jeg hleypti henni inn.«

Drottinn leit á hann spyrjandi augum.

»Aræddir?« sagði hann,— »hafði hún syndgað?«

— »Hún var með barn í faðminum.«

Drottinn leit hvorki á Pjetur nje nokkurn skapaðan hlut
ann-an, en stóð stundarkorn þegjandi.

»Pað var rjett gert af þjer!« sagði hann loks, eins og sá svarar,
sem á endanum fær af sjer að taka til máls, þó engin þörf sje
á svari.

Drottinn, hún hafði drekkt sjer, — bæði sjer og barninu!«
sagði sankti Pjetur, og stóð grafkyr og mændi á Drottin, — »og
jeg hleypti henni inn!«

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:07 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1896/0072.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free