- Project Runeberg -  Eimreiðin / II. Ár, 1896 /
99

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

99

hennar spölkorn fyrir aptan þau, hóstandi og másandi. Hann var
farinn að bila fyrir brjóstinu og honum var örðugt um hraðan
gang. »Geturðu ekki verið samferða?«

Hún ætlaði að staldra við, en læknirinn tók fastara um
hand-legginn og greikkaði heldur sporið.

»Jeg hef líklegast ekki verið þeim eins góð eins og jeg ætti
að vera — vinnukonunum á jeg við,« sagði hún svo eptir ofurlitla
þögn.

Hann var hræddur um, að hann hefði hryggt hana, og það
hafði hann þó sizt af öllu haft í hyggju.

»Nei, það dettur mjer ekki í hug,« sagði hann. »Mjer þykir
of vænt um yður til þess, að ætla yður nokkuð slikt.«

Hún leit niður fyrir sig og brosti ofurlítið; en hjartað fór
heldur en ekki að ókyrrast.

»Svo það þykir yður?« sagði hiin svo.

Ja, hvort honum þótti vænt um hana! Vænna en 11111 allt
annað, vænna en um allt annað samanlagt, sem honum hafði
nokkurn tíma þótt vænt um, vænna en um sitt eigið lií. Hann
hafði reyndar undur litið að bjóða henni, hlægilega, grátlega litið
i samanburði við svo marga aðra, sem hún auðvitað ætti kost á
að fá. En um marga daga hefði hann um ekkert annað hugsað,
en að mega bjóða henni það eina, sem hann ætti, sjálfan sig, ást
sina, umönnun sína, lif sitt. Og nú vildi hann spyrja hana, hvort
hún vildi þiggja það, verða konan sin, giptast sjer með vorinu.

Orð hans, sem hafa verið sögð svo óendanlega opt, byggðu
um stund öllu öðru út úr huga hennar, því að enginn hafði fyr
sagt þau við hana. Svo það var orðið vist, alveg ómótmælanlega
víst og áreiðanlegt, að hann elskaði hana, og hún þurfti aldrei að
efast um það framar! Hún gleymdi föður sinum, síhóstandi og
siblótandi skammt á eptir sjer. Hún gleymdi að svara biðlinum
þvi, er hann hafði spurt um. Hún gleymdi öllu, nema því einu,
að hann gekk þarna við hlið hennar í himnesku tunglsljósinu og
blessaðri kveldkælunni og elskaði hana. Hún varð svo ljert á sjer,
að hana fór að langa til að hlaupa, fljúga. Dalsáin rann fram hjá
svellinu, sem pau voru að ganga um, og henni fannst árniðurinn
líkastur fögrum hljóðfæraslætti.

»En að við dönsum hjerna yfir svellið!« sagði hún.

Það var svo mikill fögnuður í rómnum, að lækninum duldist
það ekki, að með þessu var spurning hans svarað skýlaust. Jafn-

7*

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:07 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1896/0113.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free