- Project Runeberg -  Eimreiðin / II. Ár, 1896 /
113

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

ii3

Auðvitað efndi Sigvaldi orð sín við lækninn. Þau giptust um
vorið, en dvelja hjá honum á Hóli þangað til Sveinn fær
hjeraðs-læknisumdæmi. Sigvaldi er farinn að leita hófanna með sölu á
Hóli, því að hann ætlar að fara nieð þeim, hvert sem þau fara.
Hann er orðinn töluvert breyttur. Reyndar hefur hann það til
enn, að vera nokkuð uppstökkur — það verður hann víst meðan
hann lifir — en miklu sjaldnar koma þau köst að honum en áður.
Og hann finnur, að veikindi dóttur hans, ásamt öllu þvi, sem þein:
var samfara, hafa orðið honum að brú til betra, rólegra,
umburðar-lyndara og ósjerplægnara lífs.

Brúin er enn ekki komin á ána, þvi að allt er hægfara hjer
á landi, nema geðshræringarnar einstöku sinnum. En Sigvaldi
greiðir fyrir því máli allt hvað haan getur — og það þykir
sam-sýslungum hans kynleg veðrabrigði.

Um verzlun íslands.

Þingsvitni tekið í Eyjafjaröarsýslu 1753.

Eins og alkunnugt er, rikti hin rammasta einokun í verzlun á íslandi
frá 1602 og þangað til hún var gefin laus með opnu brjefi 18. ágúst 1786.
A timabili pessu hafði verzlunin verið seld á leigu annaðhvort vissum
stöðum, svo sem íbúum Kaupmannahafnar, Málmhauga og Helsingjaeyrar,
eða þá ýmsum fjelögum, og stundum var verzlunin rekin á kostnaö
konungs sjálfs, en ávallt var Jró sama markið á henni. Áriö 1743 hafði
hið svo nefnda hörmangarafjelag fengið verzlunina, og þótti þá heldur
bregða til hins verra, þó illt væri undir. En skömmu eptir að þeir
höfðu fengið verzlunina reis sá maður upp, er mest og bezt barðist
gegn þessu ólagi, og mestan þátt átti í því, að verzlunin varð að lokum
gefin frjáls, landfógeti Skúli Magnússon. Hann lenti fljótt i deilu við
hörmangarana, og fylgdi sinu máli fram með einurð og drengskap, enda
stóð hann þá i blóma aldurs síns; kom þar að lokum, að hann fjekk
það áunnið, að skipað var að taka upp þingsvitni i öllum sýslum, sem
kaupstaðir vóru i, um verzlun hörmangaranna. Hvernig þessi þingsvitni
hafi gengið, hefi jeg hvergi sjeð, nema hvað Espólín segir (Árb.X, 38),
að þingsvitnin hafi gengið kaupmönnum allþunglega. Jeg hef ímyndað
mjer, að mörgum mundi þykja fróðlegt, að sjá þessi þingsvitni, því þau
hljóta að gefa nokkurn veginn sanna og áreiðanlega lýsingu á verzlun-

8

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:07 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1896/0127.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free