- Project Runeberg -  Eimreiðin / II. Ár, 1896 /
154

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

154

aS það ætti að vera á hvers manns heirailí. Kostnaðurinn við að afla sjer þess
er heldur ekki svo mikill, að hann geti fælt neinn frá því. Það kostar nefnilega
eina 20 aura, og fjelagsmenn, er taka hjá fjelaginu fræ fyrir 1 kr., fá það alveg
ókeypis. Vjer getum ekki nógsamlega mælt með því, að sem allraflestir vildu
bæði kynna sjer þennan ritling og gerast fjelagsmenn í þessu lofsverða fjelagi.
Hjer þarf ekki (eins og svo opt á sjer staö) að metast um það, hvort fjelagið
eigi það skilið. Eigingirnin ein, sem öllum er meðfædd í meira eða minna mæli,
ætti að vera nóg til að reka menn hópum saman í fjelagiö, því sú blessun, sem
skynsamleg garðyrkja getur fært í búið, — hún er ekki á faa fiska. Það er ekki
nóg með það, að matjurtaræktin eykur forða búsins og minnkar þannig útgjöld
til annara fæðutegunda, heldur hefur hún mjög mikla þýðingu fyrir heilsu
manna. Til þess að líkaminn geti haldizt heill og hraustur, verður sú fæða, sem
hann fær, að vera samsett af ýmsum mismunandi efnum, og í matjurtunum eru
einmitt ýms efni, sem eru nauðsynleg fyrir líkamann, en sem menn vanalega fá
allt oflitiö af á íslandi, þar sem lítil eða engin garðyrkja er. Þessu hafa útlendir
læknar, sem ferðazt hafa um Island, veitt eptirtekt, og tekið það fram í ritum
sínum. í þriðja lagi stuðlar matjurtaræktin að því, að gera fæðuna miklu
breyti-legri og ljúffengari, en hún ella getur orðið. Að því er sjerstaklega snertir
blóm-ræktina, þá hefur hún auðvitað ofurlítiiin kostnað í för með sjer, sem ekki
kemur aptur í beinhörðum peningum. En sá kostnaður er þó harla lítill í
saman-burði við þá ánægju og yndi, sem hún getur veitt mönnum. Það er ekki nóg,
til þess að mönnum geti liðið vel andlega og líkamlega, að sjá vel fyrir munni
og maga. Sýn og ilman verða að hafa eitthvað fyrir sig, og það verður ekld
ofsögum af því sagt, hve göfgandi og hressandi áhrif það getur haft á anda
manna að horfa á litfögur blóm og anda að sjer ilmlopti þeirra. Að hafa falleg
blóm í kringum sig, er sá vissasti vegur til að auka fegurðartilfinninguna og þau
geta gert þá glaðlynda og ljettlvnda, sem annars kannske sætu nöldrandi eða
hímdu í einhverju þunglyndismóki. Vjer viljum sjerstaklega minna hinar íslenzku
konur, sem jafnan munu verða hinir beztu verðir fegurðar og ánægju á
heimil-inu, á það, hve heillarík áhrif blómræktin getur liaft á tilfinningalíf barnanna.
Kennið börnunum að elska blómin, og þau munu þá elska fleira, sem er fagurt
og gott. — En auk þess sem garðyrkjan ætti á hverju einstöku heimili að geta
orðið mikil búbót, stutt heilsuna og bætt ’smekkinn (líkamlegan og andlegan), þá
ætti hún líka innan skamms að geta beinlinis orðið álitlegur atvinnuvegur
fvrir marga, ei menn legðu svo mikla stund á hana, að afurðir garðanna yrðu
margfalt meiri, en þörf væri á fyrír búið. Garðávextir eru hvervetna igæt
verzl-unarvara, og svo munu þeir líka reynast á Islandi, jafhskjótt og samgöngur
innan-lands eru komnar í viðunanlegt horf; því greiðar samgöngur eru jafnt skilyrði
fyrir því, að þessi atvinnuvegur geti þrifizt eins og aðrir. Góðar samgöngur eru
nauðsynlegt skilyrði fyrir því, að nokkur atvinnuvegur geti tekið framförum
og nýir risið upp.

FRAMSOKN II, 4. Útgefendur Sigríður porsteinsddttir og Ingibjörg
Skapta-dóttir Seyðisfirði, apríl 1896. I blaði þessu er meðal annars »athugasemd við
grein herra Boga Th. Melsteðs í 1. hepti Eimreiðarinnar II. árg. um
kvennasýning-una í Khöfn 1895«, og hafa útgefendur blaðsins óskað hennar getið í EIMR.
Er athugasemd þessi þess efnis, að þar sem B. Th. M. í grein sinni segir, aö
íslenzku blöðin hafi lítið minnzt á hluttöku íslenzkra kvenna í sýningunni, en
sum sagt skakkt frá, þá geti þessi ummæli ekki átt við »Framsókn«, því að það

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:07 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1896/0168.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free