- Project Runeberg -  Eimreiðin / II. Ár, 1896 /
216

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

2l6

þeirra ofjarl hans í kappræðum, þegar hann beitir sjer. En hann beitir
sjer svo lítið, að þegar maður kemur frá brezku landi og hefur vanizt
þvi, aö stjórnin sje í raun og veru allt í öllu á þinginu, þá finnst manni
næstum því eins og stjórn íslands sje fulltrúalaus á alþingi. Og jeg
held ekki, aö menn finni til þess, að neitt sje hjákátlegt við það frá
þeirri hlið, sem jeg er hjer að tala um. Menn finna sjálfsagt til þess,
að landshöfðingja skortír vald til þess að segja af eða á um öll mál
fvrir stjómarinnar hönd, svo að þingið rennir opt að meira eða minna blint
í sjóinn. En til hins er ekki ætlazt, að stjórnin leitist við af alefli að
sannfæra þing og þjóð um sína skoðun, þegar eitthvaö ber á milli. . .

Þeir sem vita, hve mikið þeir, er völdín hafa í
lýðstjórnarlöndun-um, þurfa að hafa fyrir þvi, að halda vinsældum og trausti alþýðunnar,
þeir munu geta áttað sig á þvi, þegar þeir hugsa út í annað eins atvik
eins og þetta, sem jeg nú hef verið aö tala um (o: Skúlamálið), að
það er ekkert undarlegt, þó að íslenzk alþýða sje stjómarvöldunum
frá-hverfari en títt er í stjórnfrelsislöndunum. Pað er ekki af því aö
íslenzk-ir valdsmenn sjeu svo raiklu lakari, heldur af þvi að þeir hafa ekki
rænu á að gera þjóðinni sinn málstað skiljanlegan, ef eitthvað í skerst —
og svo auðvitað af því, að alla verulega samvinnu milli stjórnar og
þjóðar vantar 1 framfaramálunum, eins og jeg hef áöur vikiö á. Og á
því hvorutveggja er því meiri þörf—eigi íslenzkri alþýðu að geta lærzt
að líta með sanngirni á stjórnan’öld sín —, sem margra alda útlend
kúg-un hefur komið inn hjá henni og gert arfgenga hennar á meðal
tor-tryggni og óvild til j’firboöaranna.

" FRAMFARIR Á SEINNI ÁRUM. Mjer hefði þótt gaman að skýra
nokkuð rækilega frá þeim breytingum, sem orðið hafa hjer á landi þau
14 ár, sem jeg var erlendis. En það mundi kosta mikinn undirbúning
og fyrirhöfn, og jafnframt sjálfsagt meiri skarpskyggni en jeg er
gædd-ur. Mjer dettur þá í hug aö drepa á fáein atriði i þá átt — ekki öll í
einu, heldur smátt og smátt og eptir þvi sem jeg kynnist og augun
opn-ast betur og betur.

Og jeg skal þá taka það fram þegar i byrjuninni, aö enn get jeg
ekki litiö eins á og fjöldi manna hjer á landi, að hjer hafi orðið mjög
stórkostlegar breytingar á undanförnum árum. Pað er mjög almenn
skoðun, og vitanlega hafa orðið meiri breytingar nú en á nokkru
jafn-löngu .timabili áður á þessari öld. En það má nú líka fyr vera en að
allt standi i stað, og það i landi þar sem flest er aldir á eptir timanum.
Hinu gæti jeg trúað, að töluverðar breytingar sjeu fyrir höndum,
jafn-vel fyr en almennt er búizt við.

Pegar komið er hjer (0: i Rvík) inn á höfnina, sjer maður, sem
ekki hefur komið hingað 1—2 áratugi, að nýtt hverfi, eklíi svo lítið,
hefur myndazt i bænum, frá Laugaveginum og niður að sjó. Pað eru
steinhús, litil og ekki sjerlega ásjáleg. Bærinn mun hafa vaxið um 1000
íbúa síðan um 1880, svo íiús hafa eðlilega fjölgað allmikiö. En
svip-urinn yfir þeim er likur og áður, gamla islenzka likkistulagið, með kvisti
sem einu tilbreytingunni, þegar bezt lætur, hvergi minnsta tilraun til að
gera húsin viðfeldin fyrir augað að utan. Mjer finnst ekki einu sinni
alþýða manna skilja það, að það sje neitt gaman að hafa húsin falleg aö ut-

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:07 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1896/0236.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free