- Project Runeberg -  Eimreiðin / VII. Ár, 1901 /
20

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

II

Hann hafði aö mestu leyti hrifið stjórntauma sveitarinnar úr
höndunum á Sigurði og tekiö þá til sín, og nú voru, minsta kosti,
allir hinir yngri menn farnir aö spyrja Pórð ráða, þegar eitthvað
óvaent bar aö höndum. t’cim þótti ekki ráö ráðið nema Póröur
væri með. Um þetta gat Sigurður aldrei hugsað gremjulaust.
Hann mundi öldina aðra, þegar hann hafði haft öll sömu völd í
sveitinni og Pórður hafði nú, eða freklega það. Og þessi
breyt-ing, þessi lítillækkun, á gamalsaldri, að vera minna metinn en
»ungur, óreyndur uppskafningur«, það var alt þessari »svo
köll-uðu mentun« að kenna og »skólaskröttunum«.

Ekki var furða þó Siguröi rynni í skap við þetta. Hann lét
heldur ekkert færi ónotað, til þess aö niðra skólum og þekkingu
alþýðunnar og kendi »hálfmentunar-farganinu« um alt, sem
af-laga fór.

Þórður Snorrason á Hóli í Bæjarsveit var ungur bóndi þegar
saga þessi gerðist.

Snorri faðir hans var bláfátækur húsmaður þar í sveitinni og
hafði aldrei komist hærra í lærdóminum, en að læra stóra stílinn
í kverinu sínu. Honum hafði ekki dulizt, að gott mannsefni var í
honum Pórði litla, því þó hann þætti nokkuð tannhvass og ódæll
í uppvextinum, svo sem þegar hann, strákræfillinn sonur hans
Snorra í kotinu, hafði dirfzt að segja prestsbörnunum, að þau
hefðu vísvitandi rangt viö í leiknum, þá sýndi hann það oft, að
hann var allvel greindur og aö hann mundi ekki låta hlut sinn
framvegis, viö hvern sem væri að skifta. Og oft þegar Pórður
var hvaö æstastur, brosti karl faöir hans í kampinn, klappaði á
glókollinn sinn og tautaði, aö oft yrði »góöur hestur úr göldum
fola.« Hann var aldrei orðmargur karlinn. Snorra sárlangaði til
að låta Pórð læra til prests, en sá engin tök til þess. Aftur hélt
hann, aö það mundi takast að koma honum í gegnum þennan
nýja alþýðuskóla, sem von var til ab yrði stofnaöur og svo margir
ætluðu að leita til. Svo varö það úr, að þegar Pórður var 20 ára
gamall, fór hann þangab og haföi sig áfram með því, að vinna
fyrir sér á sumrum, og með því, sem Snorri miðlaði honum af
fátækt sinni. Og hún var ekki árangurslaus skólaveran hans Pórðar.
Pað var ekki einungis að hann stæði sig bezt af öllum — var
efstur þegar hann fór, — hann lærði líka margt annað, sem ekki
var beinlínis kent í skólanum.

Hann sá margt nýtt, sem hann hafði aldrei séð áður og

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:05:17 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1901/0026.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free